Skálarhlíð er leiguíbúðir fyrir aldraða að Hlíðarvegi 45 á Siglufirði. í Skálarhlíð eru 20 einstaklingsíbúðir og 10 hjónaíbúðir.
Í Skálarhlíð er dagþjónusta aldraðra sem nýtist íbúum vel.
Markmið dagvistunar er m.a.:
-Rjúfa félagslega einangrun og efla þáttöku daglegra athafna
-Bjóða upp á þjónustu sem auðveldar fólki að búa sem lengst heima
-Að hafa notalegt umhverfi þannig að starfsfólk og gestir geti í sameiningu mótað starfsemina
-Að hver dagur verði þægilegur og ánægulegur




