Menning

Í Fjallabyggð er blómlegt menningarlíf á hinum ýmsu sviðum menningarmála.  Fjölmörg félagasamtök halda uppi öflugu starfi, hér má finna glæsileg söfn og

Menning

Í Fjallabyggð er blómlegt menningarlíf á hinum ýmsu sviðum menningarmála.  Fjölmörg félagasamtök halda uppi öflugu starfi, hér má finna glæsileg söfn og haldnar eru fjölmennar metnaðarfullar tónlistarhátíðir.

Vakning hefur orðið í safnamálum og friðun gamalla húsa í sveitarfélaginu á undanförnum árum.  Þar er flaggskipið hið glæsilega Síldarminjasafn Íslands á Siglufirði, sem er þriðja stærsta safn landsins, á Siglufirði er einnig Þjóðlagasetur sr. Bjarna Þorsteinssonar og í Ólafsfirði er áhugavert Náttúrugripasafn.  Fleiri minni söfn og vinnustofur eru í sveitarfélaginu sem gaman er að skoða.

Þær tónlistarhátíðir sem haldnar eru í sveitarfélginu eru kunnar fyrir metnaðarfulla dagská og spanna þær yfir vítt svið.  Þar skal fyrst nefna Þjóðlagahátíðina á Siglufirði sem hlaut Eyrarrósina árið 2005 sem áhugaverðasta hátíðin á landsbyggðinni, Blueshátíðin í Ólafsfirði er búin að tryggja sig rækilega í sessi og þar er ávallt líf og fjör, sama má segja um Síldarævintýrið á Siglufirði þar sem heimamenn sjá að mestu um að skemmta gestum með leik og söng en öllu meiri ró er yfir dagskrá Berjadaga, sem haldnir eru hvert haust í Ólafsfirði en þar er sígild tónlist í fyrirrúmi.  Óhætt er að mæla með öllum þessum hátíðum fyrir unnendur góðrar tónlistar og fyrir þá sem vilja njóta tilverunnar.  Að auki eru haldnir í sveitarfélaginu fjölmargir tónleikar þar sem fram koma jafnt heimamenn sem landsþekktir tónlistarmenn.

Tvö leikfélög eru starfandi í sveitarfélginu, nokkrir kórar og hljómsveitir og fjölmörg félagasamtök sem krydda mannlífið með öflugu starfi.

Menningarnefnd er bæjarstjórn til ráðuneytis um menningartengd málefni.  Í nefndinni eru 5 fulltrúar og 5 til vara.  Fundar nefndin einu sinni í mánuði eða eftir þörfum. 

Menningarfulltrúi hefur yfirumsjón með málaflokknum

 

headerheader
Starfsmenn Hafa Samband
Fjallabyggð | kt. 580706-0880 | Gránugötu 24, 580 Siglufirði | Ólafsvegi 4, 625 Ólafsfirði | Sími 464 9100 | Fax 464 9101Stefna hef - Moya