Frístundamál

Í Fjallabyggð er öflugt íþrótta og tómstundastarf þar sem allir ættu að geta fundið tómstundir og/eða íþróttir við sitt hæfi, hvort sem það er að renna

Íþróttir og tómstundir

Í Fjallabyggð er öflugt íþrótta og tómstundastarf þar sem allir ættu að geta fundið tómstundir og/eða íþróttir við sitt hæfi, hvort sem það er að renna fyrir fisk í höfninni, sparka bolta, skella sér í sund, fara á skíði eða í gönguferð um þær stórkostlegu náttúruperlur sem Fjallabyggð státar af.

Við sameiningu Siglufjarðar og Ólafsfjarðar árið 2006 í Fjallabyggð opnuðust nýjar leiðir varðandi nýtingu íþróttasvæða í sveitarfélaginu. Samnýting á mannvirkjum og mannskap mun gera okkur kleift að efla þá þjónustu og aðstöðu sem fyrir er.

Það er frístundanefnd sem fjallar um málefni á sviði íþrótta- og tómstunda.

Samkvæmt skipuriti Fjallabyggðar sem var samþykkt í bæjarstjórn 15. maí 2007 hefur íþrótta- og tómstundafulltrúi yfirumsjón með málaflokknum, einnig er hann starfsmaður frístundanefndar.

headerheader
Starfsmenn Hafa Samband
Fjallabyggð | kt. 580706-0880 | Gránugötu 24, 580 Siglufirði | Ólafsvegi 4, 625 Ólafsfirði | Sími 464 9100 | Fax 464 9101Stefna hef - Moya