Haustið 2010 voru skólarnir í Fjallabyggð sameinaðir í einn leikskóla, einn grunnskóla og einn tónskóla með starfstöðvar í báðum byggðarkjörnum, Ólafsfirði og Siglufirði.
Unnið er að nýrri skólastefnu og skólanámskrá en stefna Grunnskóla Fjallabyggðar styðst við eftirfarandi þætti:
· Starfsaðferðir Uppeldis til ábyrgðar. Meginatriðið er að kenna börnum og unglingum sjálfsaga, sjálfsstjórn og ýta undir sjálfstraust.
· ,,Skóli á grænni grein“ að starfa í sátt við umhverfið
· Olweusaráætlunina gegn einelti
· Hreysti og heilbrigði.
Við skólann eru þrjár starfsstöðvar:
Yngri deild í Ólafsfirði þar sem nemendafjöldi er u.þ.b. 65
Yngri deild á Siglufirði þar sem nemendafjöldi er u.þ.b. 75
Eldri deild á Siglufirði þar sem nemendafjöldi er u.þ.b. 135
---
Í Leikskóla Fjallabyggðar eru 82 börn á Leikhólum og Leikskálum. Í leikskólanum er lögð áhersla á skapandi starf og leik barnsins. Af leik sprettur ný þekking, nýjar tilfinningar, athafnir og leikni. Starfsfólk Leikhóla hefur hlýju, virðingu og umburðarlyndi að leiðarljósi í samskiptum sínum við börnin. Verið er að innleiða Olweusaráætlun gegn einelti á leikskólanum og starfsmenn fengið fræðslu um einelti og hvernig bregðast eigi við ef grunur leikur á því. Þá hafa starfsmenn í vetur unnið að nýrri skólastefnu og skólanámskrá.
---
Við Tónskóla Fjallabyggðar stunda yfir 150 nemendur nám veturinn 2010-2011. Starfslið skólans samanstendur af velmenntuðu og reyndum kennurum. Við skólann starfa 9 kennarar, tveir starfsmenn við ræstungu auk skólastjóra og aðstoðarskólastjóra. Starfsmenn hafa fengið færðslu um Olweusarátlunina og unnið er eftir henni í tónskólanum.
Hlutverk tónlistarskólans er að stuðla að aukinni hæfni nemenda til að:
· flytja, greina og skapa tónlist
· hlusta á tónlist og njóta hennar
· geta iðkað tónlist upp á eigin spýtur
· stunda tónlistarlíf í sínu sveitarfélagi og annars staðar
---
Símenntunarstöð Eyjafjarðar (SÍMEY) sinnir Fjallabyggð með fræðslu, hvort sem um er að ræða starfsenntun tómstundanám, bóklega- eða verklegar fræðslu.
Margvís - Tungumálamiðstöð á Akureyri býður upp á íslenskunám fyrir útlendinga í Fjallabyggð.
Fjallabyggð býður upp á leigu á fjarfundarbúnaði í Ráðhúsinu á Siglufirði.
---
Menntaskólinn á Tröllaskaga er dreifnámsskóli í Ólafsfirði sem tók til starfa haustið 2010. Skólinn starfar samkvæmt nýjum lögum um framhaldsskóla sem gefur aukið svigrúm í námsvali til stúdentsprófs og framhaldsskólaprófs. Skólinn býður upp á metnaðarfullt nám með fjölbreyttum kennsluháttum sem miða að virkni nemenda og sjálfstæði
Heimasíða Menntaskólans á Tröllaskaga er: http://www.mtr.is/




