Félagsþjónusta Fjallabyggðar hefur það að markmiði að "tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi og stuðla að velferð
íbúa á grundvelli samhjálpar" (Lög um félagsþjónustu sveitarfélaga, 1991 nr. 40). Við framkvæmd þjónustunnar er
það haft að leiðarljósi að hvetja einstaklinginn til ábyrgðar á sjálfum sér og öðrum, styrkja hann til
sjálfshjálpar og virða sjálfsákvörðunarrétt hans.
Félagsmálanefnd fer með málefni félagsþjónustu í umboði bæjarstjórnar.
Reglur um félagsþjónustu og fjárhagsaðstoð
Verkefni félagsþjónustu Fjallabyggðar eru meðal annars:
- Félagsleg ráðgjöf
- Fjárhagsaðstoð
- Húsaleigubætur
- Félagslegt leiguhúsnæði
- Þjónusta við fólk með fötlun
- Félagsleg heimaþjónusta
- Dagþjónusta aldraðra
- Barnavernd
- Aðstoð við áfengissjúka og vímuefnavarnir
- Forvarnir
Félagsþjónusta Fjallabyggðar er veitt í samræmi við eftirfarandi lög:
- Lög um félagsþjónustu sveitarfélaga nr.40/1997,
- Barnaverndarlög nr. 80/2002,
- Lög um málefni aldraðra nr. 125/1999,
- Lög um málefni fatlaðra nr. 40/1991,
- Lög um húsnæðismál nr. 44/1998,
- Lög um húsaleigubætur nr. 138/1997,
- Lög um jafnan rétt kvenna og karla nr. 96/2000.




