Flýtilyklar
30. janúar 2012
72. fundur Fræðslunefndar Fjallabyggðar
haldinn í ráðhúsinu á Siglufirði mánudaginn 30. janúar 2012
og hófst hann kl. 16:00.
Fundinn sátu: S. Guðrún Hauksdóttir, Helga Helgadóttir, Jakob Kárason, Sólrún Júlíusdóttir, Katrín
Freysdóttir og Karítas Skarphéðinsdóttir Neff.
Fundargerð ritaði: Karítas Skarphéðinsdóttir, fræðslu- og menningarfulltrúi.
Fyrir var tekið:
1. 1201096 - Málefni Tónskóla Fjallabyggðar
Undir þessum lið sátu: Magnús G. Ólafsson skólastjóri
Tónskóla Fjallabyggðar, Elías Þorvaldsson aðstoðarskólastjóri og Ave Tonisson f.h.kennara.
a) Næsta haust mun gjaldskrá Tónskólans hækka um 9%. Einnig munu afsláttareglur breytast.
Gjaldskrá Tónskóla Fjallabyggðar 2012-2013
Heilt nám kr. 48.000 - fyrir veturinn.
Hálft nám kr. 33.000 - fyrir veturinn.
Hljómsveitir og hóptímar kr. 28.000 - fyrir veturinn.
Fullorðnir, heilt nám kr. 58.000 - fyrir veturinn.
Fullorðnir, hálft nám kr. 45.000 - fyrir veturinn.
Söngnám á framhaldsstigi kr. 71.000 - fyrir veturinn.
Hljóðfæraleiga kr. 7.000 - fyrir veturinn.
Skólagjöldum er skipt á fjóra gjalddaga okt. - des. - feb. - apr.
Fullorðnir greiða fullt gjald, afsláttur reiknast frá einu barni.
1. barn greiðir 100%
2. barn greiðir 80%
3. barn greiðir 60%
4. barn greiðir 40%
Hljóðfæraleiga
Skólinn leigir út hljóðfæri á sanngjörnu verði og eiga nemendur kost á því
að halda þeim í allt að 2 ár. Að þeim tíma liðnum er reiknað með að þeir eignist sín eigin hljóðfæri.
b) Fjárhagsáætlun 2012.
Farið yfir liði í fjárhagsáætlun.
c) Rekstur tölvukerfis og launakostnaður umsjónarmanns.
Kostnaður vegna tölvuumsjónarmanns skiptist niður á þrjár skólastofnanir.
d) Skóladagatal og nemendafjöldi vorannar.
Það styttist í hæfileikakeppni grunnskólans sem tónskólinn mun taka þátt í. Tónskóli Fjallabyggðar fer í
vetrarfrí á sama tíma og Grunnskóli Fjallabyggðar.
Nemendafjöldi í tónskólanum er nú 147 talsins. Píanó, söng og gítarnám er vinsælast. Prófavikan er í lok mars.
Vortónleikar eru í apríl.
e) Húsnæðismál Tónskóla Fjallabyggðar í Tjarnarborg.
Skólastjórar lögðu fram teikningar af framtíðarhúsnæði Tónskóla Fjallabyggðar í Tjarnarborg, Ólafsfirði.
3. 1201038 - Endurskoðun og samanburður launa og ræstingasamninga á Leikskálum og Leikhólum
Fræðslunefnd hefur
óskað eftir endurskoðun launa- og ræstingasamninga á Leikskálum og Leikhólum. Fræðslu- og menningarfulltrúa falið að afla
nánari gagna varðandi ræstingar.
4. 1201068 - Endurskoðun Securitas þjónustasamninga vegna leikskólans
Fræðslu- og menningarfulltrúi hefur, að ósk
fræðslunefndar skoðað þjónustusamninga um brunaviðvörunarkerfi og innbrotaviðvörunarkerfi vegna Leikskóla Fjallabyggðar.
Fræðslunefnd óskar eftir frekari upplýsingum.
5. 1201057 - Skólavogin - nýtt matskerfi í samvinnu við Samband íslenskra sveitarfélaga
Samband íslenskra
sveitarfélaga og Skólapúlsinn hafa gert með sér samstarfssamning til að vinna sameiginlega að uppbyggingu verkefnisins ,,Skólavogin". Skólavogin
auðveldar framkvæmd ytra mats í grunnskólum og fer af stað næsta haust. Markmiðið er að gefa sveitarstjórnum og skólastjórnendum
möguleika á að fylgjast kerfisbundið með þróun ýmissa þátta í skólastarfinu. Skólavogin byggir á þremur
megin stoðum. Þær eru sem hér segir:
a) Námsárangur nemenda
b) Lykiltölur er varða rekstur grunnskólans svo sem rekstrarkostnaður á hvern nemanda
c) Viðhorf nemenda, foreldra og starfsmanna gagnvart skólastarfinu
Kostnaður fyrir Fjallabyggð er á bilinu kr. 489.000 - 589.000 á árinu 2012 -2013. Þar sem ekki var gert ráð fyrir fjármagni í verkefnið
árið 2012 verður ákvörðun tekin við gerð næstu fjárhagsáætlunar.
6. 1201028 - Reglur um skólaakstur í Fjallabyggð
Fræðslunefnd fór yfir drög að reglum um skólaakstur í
Fjallabyggð. Nefndin kom með ábendingar og fræðslu- og menningarfulltrúa falið að setja breytingar inn í reglurnar.
7. 1201066 - Verklagsreglur milli skólaráðs grunnskólans / foreldraráðs leikskólans, skólastjóra,
fræðslufulltrúa og fræðslunefndar
Skýra þarf betur verklagsreglur milli foreldraráðs leikskólans / skólaráðs
grunnskólans, skólastjóra, fræðslu- og menningarfulltrúa og fræðslunefndar.
8. 1201094 - Foreldrafundur Grunnskóla Fjallabyggðar með skólaráði, fræðslunefnd, fræðslufulltrúa og
íþrótta- og tómstundafulltrúa
Aðalfundur foreldrafélags Grunnskóla Fjallabyggðar verður haldinn 14. febrúar nk.
Skólastjóri hefur óskað eftir ýmsum aðilum skólasamfélagsins, s.s. skólaráði, fræðslunefnd, fræðslu- og
menningarfulltrúa og íþrótta- og tómstundafulltrúa.
Fræðslu- og menningarfulltrúi mun kynna nýja Aðalnámskrá grunnskóla og íþrótta- og tómstundafulltrúi kynnir vinnu
við forvarnarstefnu Fjallabyggðar. Fræðslunefnd verður með kynningu á stækkun húsnæðis Grunnskóla Fjallabyggðar.
Fræðslunefnd hvetur foreldra /forráðamenn til að mæta á fundinn.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:00.




