19. janúar 2012

Fjallabyggð

19. janúar 2012

129. fundur skipulags- og umhverfisnefndar Fjallabyggðar
haldinn í fundarherbergi syðra á Siglufirði fimmtudaginn 19. janúar 2012
og hófst hann kl. 17:00.

Fundinn sátu: Kristinn Gylfason, Sigurður Hlöðversson, Jón Árni Konráðsson, Hilmar Þór Elefsen, Sigríður V. Vigfúsdóttir, Valur Þór Hilmarsson og Ármann Viðar Sigurðsson.
Fundargerð ritaði: Valur Þór Hilmarsson, Umhverfisfulltrúi.

Fyrir var tekið:

1.  1201047 - Búfjárhald
Hákon Antonsson sækir um leyfi fyrir 3 hesta í eigin húsnæði, Fákafen 11 Siglufirði.
Erindi samþykkt.
   
2.  1201009 - Búfjárhald
Haraldur Björnsson sækir um leyfi fyrir 29 kindur, Óðinn Freyr Rögnvaldsson sækir um leyfi fyrir 29 kindur, Egill Rögnvaldsson sækir um leyfi fyrir 5 kindur og Rögnvaldur Þórðarsson sækir um leyfi fyrir 5 kindur.  Kindurnar eru í húseign Haraldar Björnssonar að Lambafeni 1, Siglufirði.
Erindi Haraldar Björnssonar, samþykkt. Erindi Egils Rögnvaldssonar, samþykkt. Erindi Óðins Freys Rögnvaldssonar, samþykkt. Erindi Rögnvaldar Þórðarsonar, samþykkt.
   
3.  1201017 - Eyrargata 18 - skemmdir á húsi
Fyrir hönd húseigenda að Eyrargötu 18 Siglufirði, óskar Eiríkur Arnarson eftir viðræðum við sveitarfélagið um tjón á umræddri húseign sem talið er að hafi orðið á húseigninni við framkvæmdir á götum í kringum húsið.
Tæknideild falið að afla upplýsinga varðandi málið.
   
4.  1201027 - Götuheiti Ólafsfirði
Hestamannafélagið Gnýfari leggur til að götur á svæði hestamanna í Ólafsfirði fái nöfnin Brimvellir (fyrir framan núverandi hesthús), Faxavellir (við nýju hesthúsin og reiðskemmu) og Fjárvellir (við hús fyrir frístundabúskap).
Erindi samþykkt.
   
5.  1201045 - Lóðarleigusamningur - Tjarnargata 2
Lagður er fram lóðarleigusamningur og lóðarblað fyrir Tjarnargötu 2, Siglufirði.
Erindi samþykkt.

6.  1005165 - Snorragata - deiliskipulag
Erindi hefur borist frá Skipulagsstofnun varðandi deiliskipulag við Snorragötu þar sem stofnunin gerir athugsemd við að sveitarstjórn birti auglýsingu um samþykkt deiliskipulag í B- deild Stjórnartíðinda, þar sem ekki liggur fyrir staðfest aðgerðaráætlun um aðgerðir sveitarstjórnar varðandi uppbyggingu hótels á svæðum A og B, skv. 18. og 19. gr. reglugerðar um hættumat og hættumat liggur ekki fyrir á svæði c, þar sem hluti fyrirhugaðs hótels á að rísa.
Tæknideild falið að gera aðgerðaráætlun.
   
7.  1201048 - 17. aðalfundur Samorku 17. febrúar 2012
Fundarboð á 17. aðalfund Samorku lagt fram til kynningar.
   
8.  1201008 - Gjaldskrá Moltu 2012
Gjaldskrá Moltu ehf., lögð fram til kynningar.
   
9.  1201035 - Umferðaröryggi á vetrum
Lagt fram til kynningar erindi frá Umferðarstofu varðandi hálkuvarnir og snjóhreinsun og hvatt til að öryggi allra vegfarendahópa sé sett í öndvegi.
   

Fleira ekki gert.  Fundi slitið kl. 18:00.

Höfundur: Hafdís Jónsdóttir - Uppfært: 20.01.2012
headerheader
Starfsmenn Hafa Samband
Fjallabyggð | kt. 580706-0880 | Gránugötu 24, 580 Siglufirði | Ólafsvegi 4, 625 Ólafsfirði | Sími 464 9100 | Fax 464 9101Stefna hef - Moya