Flýtilyklar
19. janúar 2012
61. fundur Félagsmálanefndar Fjallabyggðar
haldinn í ráðhúsinu á Siglufirði fimmtudaginn 19. janúar 2012
og hófst hann kl. 15:30.
Fundinn sátu: Rögnvaldur Ingólfsson, Margrét Ósk Harðardóttir, Margrét Guðmundsdóttir, Guðrún
Unnsteinsdóttir, Guðrún Árnadóttir, Hjörtur Hjartarson, Hrefna Katrín Svavarsdóttir og Helga Helgadóttir.
Fundargerð ritaði: Hjörtur Hjartarson, félagsmálastjóri.
Fyrir var tekið:
1. 1201050 - Tillögur að breytingum á reglum um fjárhagsaðstoð
Lagðar fram tillögur að breytingum á reglum um
fjárhagsaðstoð á vegum Fjallabyggðar. Breytingarnar varða greinar nr. 3, 4, 8, 13 og 14. Félagsmálanefnd samþykkir tillögurnar fyrir sitt
leyti.
2. 1110059 - Skynörvunarherbergi
Lögð fram greinargerð um svokallað skynörvunarherbergi í húsnæði Iðju dagvistar. Um
er að ræða sérútbúna aðstöðu til að þjálfa og örva heyrn, sjón og snertiskynjun. Fötluðu fólki í
Fjallabyggð og nágrenni ásamt fötluðum börnum í grunn- og leikskóla Fjallabyggðar mun standa til boða að nýta sér þessa
einstöku þjálfunaraðstöðu. Kostnaður við búnaðinn er að mest leyti fjarmagnaður með áheitafé sem safnaðist þegar
Þórir Kristinn Þórisson, fyrrverandi bæjarstjóri Fjallabyggðar hjólaði frá Reykjavík til Siglufjarðar s.l. sumar til styrktar
Iðju dagvist fatlaðra.
Kiwanisklúbburinn Skjöldur á Siglufirði hefur boðist til að taka að sér að koma búnaðinum fyrir.
Félagsmálanefnd fagnar þessu merka framtaki og vill færa Þóri Kr. Þórissyni bestu þakkir fyrir sitt merka framtak og sömuleiðis eru
kiwanismönnum færðar bestu þakkir fyrir aðstoðina. Stefnt er að því að aðstaðan verði komin í gagnið 2. febrúar n.k.
á 20 ára afmælisdegi Iðjunnar.
3. 1201062 - Matsblað vegna forgangsröðunar umsókna eftir félagslegu leiguhúsnæði í Fjallabyggð
Lögð fram
tillaga að breytingum á matsblaði sem lagt er til grundvallar við forgangsröðun um úthlutun félagslegra leiguíbúða í eigu
Fjallabyggðar, sbr. 20. gr. reglna um úthlutun leiguíbúða Fjallabyggðar.
Félagsmálanefnd samþykkir breytingar á matsblaðinu fyrir sitt leyti.
4. 1201033 - Rekstur leiguíbúða, tekju- og eignamörk 2012
Erindi frá Velferðarráðuneytinu þar sem mælt er fyrir um
tekju- og eignamörk í samræmi við reglugerð nr. 873/2001. Frá og með 1. janúar 2011 eru uppreiknuð tekju- og eignamörk skv. 23. og 24. gr.
reglugerðarinnar eftirfarandi:
Tekjur fyrir einstakling kr. 3.894.000.
Tekjur fyrir hvert barn að 20 ára aldri sem býr á heimilinu kr. 652.000.
Tekjur fyrir hjón og sambúðarfólk kr. 5.179.000.
Eignamörk kr. 4.203.000.
5. 1201032 - Útreikningur húsaleigubóta 2012
Erindi frá Velferðarráðuneytinu þar sem er tilkynnt er að uppreiknuð
viðmiðunarfjárhæð vegna eignamarka við útreikning húsaleigubóta er kr. 6.383.000. Húsaleigubætur skerðast um 1% af árstekjum
umfram 2,25 millj. kr. í stað 2 millj. kr. áður.
6. 1102072 - Fundargerðir Starfshóps um úthlutun leiguíbúða 2011
Lagt fram til kynningar.
7. 1108096 - Trúnaðarmál, fjárhagsaðstoð
Erindi synjað.
8. 1112055 - Trúnaðarmál,fjárhagsaðstoð
Erindi synjað.
9. 1112017 - Trúnaðarmál, fjárhagsaðstoð
Samþykkt.
10. 1106114 - Trúnaðarmál, fjárhagsaðstoð
Samþykkt.
11. 1201043 - Trúnaðarmál, umsókn um styrk
Samþykkt.
12. 1201021 - Skerðing heimahjúkrunar á vegum HSF og flutningur verkefna til heimaþjónustu Fjallabyggðar
Lagt fram minnisblað félagsmálastjóra og bæjarstjóra er varðar hugsanlega skerðingu á þjónustu í heimahjúkrun á
vegum HSF.
13. 1112064 - Fundargerð þjónustuhóps SSNV 16.12.2011
Lagt fram til kynningar.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:15.




