Flýtilyklar
18. janúar 2012
73. fundur Bæjarstjórnar Fjallabyggðar
haldinn í bæjarstjórnarsal ráðhússins á Siglufirði miðvikudaginn
18. janúar 2012 og hófst hann kl. 17:00.
Fundinn sátu: Þorbjörn Sigurðsson, Egill Rögnvaldsson, Ingvar Erlingsson, Bjarkey Gunnarsdóttir, Helga Helgadóttir, Sólrún
Júlíusdóttir, Magnús Albert Sveinsson, Guðmundur Gauti Sveinsson, S. Guðrún Hauksdóttir og Sigurður Valur Ásbjarnarson.
Fundargerð ritaði: Sigurður Valur Ásbjarnarson, bæjarstjóri.
Fyrir var tekið:
1. 1110130 - Byggðakvóti fiskveiðiársins 2011/2012
Bæjarstjóri fór yfir málið frá því að
það var tekið fyrir á fundi bæjarráðs, sjá 242. fund bæjarráðs.
Til máls tóku Þorbjörn Sigurðsson, Sólrún Júlíusdóttir og Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir.
Afgreiðsla 243. fundar bæjarráðs staðfest á 73. fundi bæjarstjórnar með 9 atkvæðum.
Bæjarstjóra er falið að rita ráðuneytinu bréf með rökstuðningi þar sem lögð er áhersla á að veiðireynsla
í Fjallabyggð sé óháð hvar landað er, innan marka sveitarfélagsins.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18.00.




