Flýtilyklar
17. janúar 2012
243. fundur bæjarráðs Fjallabyggðar
haldinn í fundarherbergi syðra á Siglufirði þriðjudaginn 17. janúar 2012
og hófst hann kl. 16:00.
Fundinn sátu: Ólafur Helgi Marteinsson, Bjarkey Gunnarsdóttir, Egill Rögnvaldsson og Sigurður Valur Ásbjarnarson.
Fundargerð ritaði: Sigurður Valur Ásbjarnarson, bæjarstjóri.
Fyrir var tekið:
1. 1201011 - Fjárhagsáætlun málefna fatlaðra 2012
Heildartekjur SSNV er varðar málefni fatlaðra munu nema í heild
um 500 m.kr. og þar af munu greiðslur frá sveitarfélögunum beint nema 74 m.kr. á árinu 2012. Framlag Jöfnunarsjóðs nemur því um
426 m.kr.
Hlutur Fjallabyggðar er um 15 m.kr. eða 1.254.947 á mánuði.
Með yfirtöku sveitarfélaga á málaflokknum hækkaði álagningarstofn útsvars um 1.2 prósentustig. Þannig renna 0.25 prósentustig
beint til bæjarfélagsins, en 0.95 prósentustig renna til Jöfnunarsjóðsins og þaðan til Byggðasamlagsins.
Heildarkostnaður Byggðasamlagsins vegna málefna fatlaðra í Fjallabyggð er áætlaður um 91 m.kr.
Lagt fram til kynningar.
2. 1112037 - Meindýraeyðing - athugasemd vegna verkefnis
Lagt fram bréf bæjarstjóra er varðar meindýraeyðingu.
3. 1110130 - Byggðakvóti fiskveiðiársins 2011/2012
Lögð fram bréf frá Árna Helgasyni f.h. Útgerðar ehf. og
Frey S. Gunnlaugssyni f.h. Útgerðarfélagsins Nesins ehf.
Bréfritarar óska eftir því að reglum um úthlutun á byggðakvóta verði breytt líkt og óskað var eftir á
síðasta ári.
Einnig var lagt fram bréf frá Smábátafélaginu Skalla undirritað af Sverri Sveinssyni.
Ólafur Helgi Marteinsson vék af fundi við afgreiðslu þessa erindis.
Bæjarráð leggur áherslu á að byggðakvóti sé unnin í Fjallabyggð og hvetur útgerðaraðila til að standa vörð
um það sjónarmið bæjarráðs. Því mun bæjarráð ekki leggja til við bæjarstjórn breytingar í
þá veru sem fram koma í óskum smábátafélagsins Skalla.
Bæjarráð samþykkir að óska eftir breytingu á 4.gr. og 6.gr. reglugerðar nr.1182 frá 21. desember 2011 um úthlutun
byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2011/2012. Verði orðalagi breytt þannig að í stað orðsins byggðarlags í 1.
mgr. 4 gr. komi orðið sveitarfélags, og í 1 mgr. 6. gr. komi orðið sveitarfélagsins í stað byggðarlags.
Greinarnar verða þá svohljóðandi;
4. gr.
Viðmiðanir um úthlutun aflamarks til einstakra fiskiskipa.
Skipting þess aflamarks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks
byggðarlagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði 1. gr.,
sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta í einstökum sveitarfélögum sem ráðuneytið staðfestir
samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á, og skal skipt hlutfallslega af því aflamarki sem fallið hefur til viðkomandi byggðarlags, miðað
við allan landaðan botnfiskafla í tegundum sem hafa þorskígildisstuðla, í þorskígildum talið innan sveitarfélagsins á
tímabilinu 1. september 2010 til 31. ágúst 2011. Komi minna en 100 þorskígildiskíló í hlut fiskiskips samkvæmt framangreindum reglum
fellur hlutur til þess niður og skiptist hlutur þess milli annarra fiskiskipa frá sama byggðarlagi sem uppfylla skilyrði fyrir úthlutun í samræmi
við skiptingu samkvæmt úthlutunarreglum.
Afli af fiskiskipum sem landað er í byggðarlagi af bátum sem ekki eru skráðir innan viðkomandi byggðarlags á sama tíma, telst ekki til
landaðs afla samkvæmt 1. mgr.
Réttindi til úthlutunar fylgja skipi, nema ef eigandi eða leigutaki fiskiskips, sbr. 1. gr. hefur endurnýjað fiskiskip sitt á því
viðmiðunartímabili sem fram kemur í 1. mgr. og flutt aflahlutdeildir af eldra skipinu yfir á endurnýjaða skipið getur hann í umsókn sinni
óskað eftir að við úthlutun aflamarks skv. 1. mgr. sé tekið tillit til landaðs afla eldra skips umsækjanda í sömu hlutföllum og nemur
þeim aflahlutdeildum sem hafa verið fluttar milli skipanna.
Ef fiskiskip er endurnýjað eftir að skipting aflamarks hefur farið fram samkvæmt 1. mgr. en áður en uppfyllt hafa verið skilyrði samkvæmt 6. gr. er
heimilt að óska eftir að flytja rétt til úthlutunar aflamarks af eldra skipinu yfir á endurnýjaða skipið, enda hafi verið gerður fyrirvari
þess efnis í kaupsamningi eða afsali, hafi skip verið selt á því tímamarki.
6. gr.
Löndun til vinnslu.
Fiskiskipum er skylt að landa til vinnslu innan hlutaðeigandi sveitarfélags á tímabilinu frá 1. september 2011 til 31.
ágúst 2012 afla sem nemur, í þorskígildum talið, tvöföldu magni þess aflamarks sem þau fá úthlutað samkvæmt
reglugerð þessari og skal úthlutun til þeirra ekki fara fram nema að því leyti sem það skilyrði er uppfyllt skv. vigtunar- og
ráðstöfunarskýrslum sem borist hafa Fiskistofu. Miða skal við allar botnfiskaflategundir sem gefinn hefur verið út þorskígildisstuðull
fyrir. Einnig er það skilyrði fyrir úthlutun að ekki hafi verið flutt meira aflamark í þorskígildum talið á fiskveiðiárinu
2011/2012 frá viðkomandi fiskiskipum en flutt hefur verið til þeirra þegar afhending aflamarks á sér stað. Afla sem boðinn er upp á
fiskmarkaði telst ekki hafa verið landað til vinnslu samkvæmt þessari grein. Þá er einungis heimilt að meta til viðmiðunar samkvæmt
þessari grein landaðan afla sem ekki hefur áður verið metinn til úthlutunar byggðakvóta.
Með vinnslu skv. 1. mgr. er átt við flökun, flatningu, frystingu eða herslu.
Ef eigandi eða leigutaki fiskiskips, sbr. 1. gr. hefur endurnýjað fiskiskip sitt eftir að lokið er því viðmiðunartímabili sem fram kemur í 1.
mgr. 4. gr. en áður en uppfyllt hafa verið skilyrði samkvæmt þessari grein og eftirstöðvar á rétti til úthlutunar skv. 5. mgr. 4. gr.
verið flutt af eldra skipinu yfir á endurnýjaða skipið, sbr. 3. mgr. 4. gr., skal við mat á hvort uppfyllt eru skilyrði samkvæmt þessari grein
einnig heimilt að miða við landaðan afla beggja skipanna í viðkomandi byggðarlagi.
Fiskistofu er heimilt, að fengnu samþykki ráðuneytisins, að afhenda aflamark fiskiskips útá afla annars skips í eigu eða leigu sama
lögaðila. Jafnframt er heimilt, að fengnu samþykki ráðuneytisins, að flytja rétt til úthlutunar aflamarks milli skipa í eigu eða leigu sama
lögaðila.
Ráðherra er heimilt, að fengnum rökstuddum tillögum sveitarstjórnar, að víkja frá ákvæðum þessarar greinar enda sé
það gert á grundvelli málefnalegra og staðbundinna ástæðna. Um málsmeðferð og staðfestingu tillagna sveitarstjórna
samkvæmt þessari grein skulu gilda ákvæði 3. gr.
Fiskistofu er heimilt samkvæmt beiðni útgerðaraðila að úthluta aflamarki fyrir fiskveiðiárið í fimm áföngum, 1/5 hverju sinni
enda séu skilyrði um landað magn til vinnslu samkvæmt ákvæðum þessarar greinar uppfyllt í sama hlutfalli á sama tíma. Hafi
skilyrði fyrir úthlutun aflamarks til einstakra fiskiskipa á grundvelli reglugerðar þessarar ekki verið uppfyllt að fullu í lok þess tímabils
sem fram kemur í 1. mgr. þessarar greinar, fellur niður réttur til aflamarks í hlutfalli við það sem upp á vantar að skilyrði séu
uppfyllt. Takist ekki að úthluta öllu aflamarki viðkomandi skips fyrir lok fiskveiðiársins er Fiskistofu heimilt að úthluta áunnu aflamarki
fiskveiðiársins 2011/2012 á fiskveiðiárinu sem hefst 1. september 2012, enda hafi viðkomandi skip ekki flutt meira aflamark frá skipinu en til þess
í lok fiskveiðiársins á undan.
Samþykkt samhljóða.
4. 1201029 - Gjald Flokkunar Eyjafjarðar ehf.fyrir árið 2012 -fyrri hluti greiðslu
Lagt fram til kynningar upplýsingar um greiðslu
Fjallabyggðar vegna þjónustu Flokkunar Eyjafjarðar ehf.
5. 1201021 - Skerðing heimahjúkrunar á vegum HSF og flutningur verkefna til heimaþjónustu Fjallabyggðar
Lagt fram minnisblað
félagsmálastjóra og bæjarstjóra er varðar hugsanlega skerðingu á þjónustu í heimahjúkrun á vegum HSF.
6. 1201036 - Staða lána um áramót og greiðsluáætlanir
Lánayfirlit frá Lánasjóði
sveitarfélaga lagt fram til kynningar.
7. 1201041 - Yfirlit yfir greiðslur sveitarfélag vegna almennra húsaleigubóta fjárhagsárið 2011
Lagt fram til kynningar.
8. 1201046 - Fundir deildarstjóra Fjallabyggðar 2012
Fundargerð lögð fram til kynningar.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:00.




