10. janúar 2012

Fjallabyggð

10. janúar 2012

242. fundur bæjarráðs Fjallabyggðar
haldinn í fundarherbergi í Ólafsfirði þriðjudaginn 10. janúar 2012
og hófst hann kl. 12:00.

Fundinn sátu: Bjarkey Gunnarsdóttir stjórnaði fundi í fjarveru Ólafs H. Marteinssonar, Egill Rögnvaldsson, Þorbjörn Sigurðsson, Sigurður Valur Ásbjarnarson og Ólafur Þór Ólafsson.
Fundargerð ritaði: Ólafur Þór Ólafsson skrifstofu- og fjármálastjóri.

Fyrir var tekið:

1.  1110130 - Auglýsing umsóknar um byggðakvóta fiskveiðiársins 2011/2012
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið hefur úthlutað Fjallabyggð byggðakvóta fiskveiðiárið 2011/2012. Í bréfi þeirra dags. 21.12.2011 kemur fram að Siglufirði er úthlutað 197 þorskígildistonnum en Ólafsfirði 58 tonnum.
Athygli er vakin á breytingum á nokkrum greinum reglugerðar til byggðarlaga.

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að reglur ráðuneytisins verði samþykktar með áorðnum breytingum en þær eru í samræmi og takti við áherslur Fjallabyggðar frá árinu 2010/2011.

2.  1112077 - Beiðni um umsögn vegna umsóknar um rekstrarleyfi - Olís, Bylgjubyggð 2 Ólafsfirði
Sýslumaðurinn á Siglufirði óskar umsagnar um rekstrarleyfi frá Sigurjóni Bjarnasyni f.h. Olíuverslunar Íslands h.f.  Um er að ræða rekstrarleyfi á grundvelli 11.gr. laga nr.85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, skv. 1.flokki 4.gr. laganna. Um er að ræða veitingastofu og greiðasölu án áfengisveitinga.

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að umrætt leyfi verði veitt og samþykkir opnunartíma til kl. 23.30 alla daga vikunnar.
   
3.  1112013 - Samningur vegna notkunar á höfundaréttarvörðu efni
Samningur Fjölís og sveitarfélagsins um notkun á höfundaréttarvörðu efni rann út á árinu. Þar sem Fjölís gætir hagsmuna þeirra félaga sem fara með höfundarrétt vill félagið bjóða sveitarfélaginu framlengingu á óbreyttum samningi til 1. júlí 2012.

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að slíkur samningur verði samþykktur og undirritaður af  bæjarstjóra fyrir hönd Fjallabyggðar.
 
4.  1105081 - Samstarfssamningur um rekstur Almannavarnarnefndar Eyjafjarðar
Lagður fram undirritaður samstarfssamningur um rekstur Almannavarnarnefndar, en samningurinn var undirritaður 21.desember s.l. og tók gildi frá og með undirritun.
   
5.  1111025 - Sigurjón Magnússon ehf. - Staða og framtíðarhorfur
Bæjarráð óskaði eftir skoðun Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar á rekstri félagsins fyrir áramót til að tryggja áframhaldandi rekstur og þar með atvinnu fyrir starfsmenn þess.
Verkefninu er nú lokið af þeirra hálfu og er nú málið í frekari vinnslu hjá eigendum í samræmi við sameiginlega niðurstöðu á stöðu fyrirtækisins.

Lagt fram til kynningar.
   
6.  1201013 - Launayfirlit janúar - desember 2011

Skrifstofu- og fjármálastjóri lagði fram launayfirlit fyrir árið 2011. Gerði hann grein fyrir helstu frávikum frá áætlun ársins.
Niðurstaða launayfirlits er 101.5% eða um 12.7 m.kr. umfram áætlun.
   
7.  1201007 - Smábátahafnir og baðstrendur á Íslandi - Könnun vegna Bláfánans 
Bláfánaverkefnið hófst á árinu 2003 og hafa nú sex staðir flaggað fánanum hingað til og er frestur til að sækja um Bláfánann fyrir árið 2012 til 25. febrúar n.k.  Fáninn er til marks um aukna umhverfisvitund og þar með kröfu um vistvæna starfshætti.

Bæjarráð vísar umræddri könnun sem er á vegum Landverndar til afgreiðslu hafnarstjórnar.

8.  1201006 - Reitir - Alþjóðlegt samstarfsverkefni skapandi fólks á Siglufirði
Arnar Ómarsson, listamaður boðaði til fundar 28. desember sl. og á fundinn mætti f.h. bæjarfélagsins umhverfisfulltrúi Fjallabyggðar. Ætlunin er að standa fyrir alþjóðlegu samstarfsverkefni skapandi fólks á Siglufirði næsta sumar.
Ætlunin er að þetta verkefni verði árlegt og muni þróast í samráði við bæjarbúa og bæjaryfirvöld.

Bæjarráð fagnar hugmyndinni og er umhverfisfulltrúa falið að halda utan um verkefnið fyrir bæjarfélagið. Fjárstuðningur sveitarfélagsins við verkefnið verður óverulegur. 
   
9.  1201010 - Vatnssýni í Fjallabyggð 2011 
Lagðar fram til kynningar niðurstöður á efnagreiningu á neysluvatnssýnum skv. heildarúttekt reglugerðar nr. 536/2001 og voru sýnin send til ALS Scandinavia AB í Svíþjóð til mælinga.

Niðurstaðan liggur nú fyrir og staðfest að vatnið í Ólafsfirði og á Siglufirði stenst gæðakröfur skv. reglugerð nr.536/2001.

10.  1201003 - Fundargerð Heilbrigðisnefndar Norðurlands vestra frá 15.12.2011
Fundargerð lögð fram til kynningar.
Í fundargerðinni kemur fram að Norlandia í Ólafsfirði hefur fengið starfsleyfi til bráðabirgða til 01.06.2012.
Lögð er áhersla á að fyrirtækið skili inn greinargerð fyrir 02.05.2012 um virkni nýs hreinsibúnaðar og aðrar aðgerðir til að stemma við lyktarmengun eins og það er orðað í bókun nefndarinnar.

11.  1112074 - Fundargerð 792. fundar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Fundargerð lögð fram til kynningar.

12.  1201015 - Sterkari stjórnsýsla - nám fyrir stjórnendur í sveitarfélögum
Lagt fram til kynningar.

13.  1106092 - Átak í afþreyingar- og umhverfismálum í Siglufirði
Egill Rögnvaldsson vék af fundi við umfjöllun þessa dagskrárliðar.
Bæjarráð telur brýnt að viðræðum og samningum milli aðila verði lokið sem fyrst með heildstæðum samningi sbr. erindi Rauðku ehf. og tengdra aðila frá 21. júní 2011.
Að öðru leyti vísar bæjarráð til fyrri bókana í skipulags og umhverfisnefnd sem og í bæjarráði og er lögð áhersla á bókun frá 28. júní 2011.
Rétt er einnig að minna á áherslur og afgreiðslu bæjarstjórnar við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2012 – 2015.

Fleira ekki gert.  Fundi slitið kl. 13.10.

Höfundur: Hafdís Jónsdóttir - Uppfært: 10.01.2012
headerheader
Starfsmenn Hafa Samband
Fjallabyggð | kt. 580706-0880 | Gránugötu 24, 580 Siglufirði | Ólafsvegi 4, 625 Ólafsfirði | Sími 464 9100 | Fax 464 9101Stefna hef - Moya