Flýtilyklar
7. febrúar 2012
245. fundur bæjarráðs Fjallabyggðar
haldinn í fundarherbergi syðra á Siglufirði þriðjudaginn 7. febrúar 2012 og hófst hann kl. 16:00.
Fundinn sátu: Ólafur Helgi Marteinsson, Bjarkey Gunnarsdóttir, Sólrún Júlíusdóttir, Sigurður Valur Ásbjarnarson
og Ólafur Þór Ólafsson.
Fundargerð ritaði: Ólafur Þór Ólafsson, skrifstofu- og fjármálastjóri.
Fyrir var tekið:
1. 1202003 - Aðild sveitarfélaga að rammasamningum Ríkiskaupa 2012
Fyrirhuguð eru rammasamningsútboð Ríkiskaupa fyrir
árið 2012 og er bæjarfélögum boðin þátttaka að venju.
Bæjarráð telur rétt að Fjallabyggð endurnýji aðild að rammasamningakerfi Ríkiskaupa.
Bæjarfélagið mun greiða árgjald til Ríkiskaupa að upphæð kr. 21.335.- með vsk.
Samþykkt samhljóða.
2. 1110090 - Húsnæði Aladíns við Ægisgötu 15
Bæjarfélaginu er boðið umrætt húsnæði, sem
staðsett er við knattspyrnuvöllinn í Ólafsfirði, til kaups með yfirtöku skulda.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að kaupin fari fram og er kaupverð miðað við kr. 10.350.000.-.
Bæjarráð mun miða við núverandi fjárfestingastefnu bæjarfélagsins þrátt fyrir umrædd kaup.
3. 1111028 - Breyting á nefndarskipan
Lagt fram erindi frá Sólrúnu Júlíusdóttur bæjarfulltrúa fyrir hönd
minnihluta.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að áheyrnarfulltrúi í byggingarnefnd grunnskóla Fjallabyggðar verði Jón Tryggvi
Jökulsson, aðalmaður og Jakob Kárason til vara.
Samþykkt samhljóða.
4. 1202009 - Afsal - Fjallabyggð - Síldarminjasafn Íslands ses. Mannvirki á lóðinni Tjarnargötu 2
Siglufirði
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að fram komið afsal verði samþykkt og undirritað af bæjarstjóra,
en þar kemur fram að Fjallabyggð afsali mannvirkjum á lóðinni Tjarnargötu 2, til Síldaminjasafnsins ses., samkvæmt skipulagsskrá fyrir
Síldarminjasafn Íslands. Umrædd mannvirki munu falla aftur til Fjallabyggðar verði félaginu slitið.
Samþykkt samhljóða.
5. 1201024 - Tjarnarstígur 3 - útboðs- og samningsskilmálar
Lagðar fram upplýsingar um tilboð í framkvæmdir við
grunnskólann í Ólafsfirði.
Sjö aðilar skiluðu inn tilboði í framkvæmdirnar og er miðað við skilatíma 1. september 2012.
Fjögur frávikstilboð bárust og er tæknideild bæjarfélagsins falið að óska eftir frekari upplýsingum
frá bjóðendum er varðar m.a. stöðu bjóðenda og undirverktaka.
Verktaki Tilboð
% Frávikstilboð
%
Eykt
ehf 158.626.020
102,9 Skilaði ekki
Berg ehf/GJ Smiðir 167.950.000 109,0
159.100.000 103,2
Pétur Jónsson 168.760.960
109,5 Skilaði ekki
BB Byggingar ehf 175.934.713
114,1 170.932.492 110,9
Tréverk ehf 181.379.888
117,7 175.308.236 113,7
ÍAV
192.851.137 125,1 Skilaði ekki
SS Byggir
204.241.991 132,5 174.409.018 113,1
Kostnaðaráætlun 154.144.311 100 154.144.311 100
Lögð fram fundargerð byggingarnefndar grunnskólans frá 6. febrúar 2012.
Í fundargerð kemur fram að óskað hefur verið eftir frekari upplýsingum frá þremur lægstbjóðendum.
6. 1012045 - Framtíðarfyrirkomulag Tjarnarborgar
Lögð fram drög að framtíðarfyrirkomulagi um rekstur Tjarnarborgar.
Bæjarráð telur eðlilegt að fagnefnd ljúki umræðu um framkomnar tillögur, áður en til afgreiðslu kemur í
bæjarráði.
Samþykkt samhljóða.
7. 1202008 - Samningur um afnot og rekstur af Ægisgötu 15 Ólafsfirði
Lögð fram fyrstu drög að framtíðarfyrirkomulagi um
rekstur Ægisgötu 15 í Ólafsfirði í framhaldi af yfirtöku bæjarfélagsins á rekstri og eignarhaldi á umræddu
húsnæði.
Bæjarráð telur eðlilegt að fagnefnd ljúki umræðu um framkomin drög og tillögu áður en til afgreiðslu kemur í
bæjarráði.
Samþykkt samhljóða.
8. 1202007 - Fundagerðir Sambands íslenskra sveitarfélaga 2012
Fundargerð 793. fundar lögð fram til kynningar.
9. 1201099 - Úthlutun framlaga vegna sölu félagslegra íbúða
Lögð fram tvö bréf frá Varasjóði
húsnæðismála dags. 25.janúar 2012.
Fjallabyggð hefur fengið viðbótarúthlutun úr Varsjóði húsnæðismála að upphæð kr. 2.634.310.- og er söluframlag
sjóðsins fyrir árið 2011 því 71,5% í stað 55% sem áður var miðað við.
Leiðrétting er gerð á framlögum vegna þriggja eigna sem bæjarfélagið seldi á árinu 2011, en það voru Hafnargata 24,
Laugarvegur 37 og Ægisgata 32.
Lagt fram til kynningar.
10. 1202010 - Fundagerðir Heilbrigðisnefndar Norðurlands vestra 2012
Fundargerð frá 31. janúar lögð fram til kynningar.
11. 1202012 - Til umsagnar - Frumvarp til laga um stjórn fiskveiða
Atvinnuveganefnd Alþingis hefur sent til umsagnar frumvarp til laga um stjórn
fiskveiða (uppboð aflaheimilda), 202. mál.
Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: http://www.althingi.is/altext/140/s/0207.html
Lagt fram til kynningar.
12. 1202013 - Til umsagnar - frumvarp til laga um fjögurra ára samgönguáætlun
Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis hefur sent til
umsagnar frumvarp til laga um fjögurra ára samgönguáætlun 2011-2014, 392. mál. Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis:
http://www.althingi.is/altext/140/s/0533.html
Lagt fram til kynningar.
13. 1202014 - Til umsagnar - tillaga til þingsályktunar um samgönguáætlun fyrir árin 2011-2014
Umhverfis- og samgöngunefnd
Alþingis hefur sent til umsagnar tillögu til þingsályktunar um samgönguáætlun 2011-2022, 393. mál. Þingskjalið er hægt að
sækja á vef Alþingis: http://www.althingi.is/altext/140/s/0534.html
Lagt fram til kynningar.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 16:50.




