Flýtilyklar
6. febrúar 2012
5. fundur Byggingarnefndar Gunnskóla Fjallabyggðar
haldinn í fundarherbergi í Ólafsfirði mánudaginn 6. febrúar 2012
og hófst hann kl. 16:00.
Fundinn sátu: Sigurður Valur Ásbjarnarson, Kristinn Gylfason, Guðbjörn Arngrímsson, S. Guðrún Hauksdóttir, Jóna
Vilhelmína Héðinsdóttir og Ármann Viðar Sigurðsson.
Fundargerð ritaði: Sigurður Valur Ásbjarnarson, bæjarstjóri.
Fyrir var tekið:
1. 1201024 - Tjarnarstígur 3 - útboðs- og samningsskilmálar
Bæjarstjóri bauð fundarmenn velkomna til fundarins og voru
arkitektar skólans boðaðir sérstaklega til fundarins sem og deildarstjóri tæknideildar.
Farið var yfir þau gögn sem búið var að yfirfara af tæknimönnum fyrir fundinn, en sjö aðilar skiluðu inn tilboðum í framkvæmdina
miðað við 1. september og fjögur frávikstilboð bárust í framkvæmdin en þá er miðað við skil á verkinu 22.
desember.
Fundarmenn óskuðu eftir frekari fundargögnum frá þremur lægstbjóðendum
Mikil umræða varð um tilboðin og bjóðendur, en fallist var á að óska eftir frekari upplýsingum í samræmi við
útboðsgögn.
Nefndin taldi ljóst að eitt tilboðið uppfyllti ekki útboðsgögn og því gallað. Samþykkt var að vísa því frá og
taka ekki mark á tilboðinu vegna annmarka.
Nefndarmenn tóku síðan ákvörðun um frekari útboð þ.e. annan áfanga og er arkitektum falið að skila þeim
útboðsgögnum hið fyrsta.
Nefndarmenn munu mæta til fundar þegar niðurstöður liggja fyrir og gögn um bjóðendur verða komin í hús til skoðunar.
2. 1111031 - Verkhönnunarfundir vegna Grunnskóla Fjallabyggðar – Ólafsfirði
Fundargerð 10. fundar átti að liggja frammi
á fundinum, en var aðgengileg í fundargátt.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:30.




