Skíðasvæðið Skarðsdal Siglufirði

Tjaldstæði

Tjaldstæði Siglufirði
Tjaldsvæði Siglufjarðar er staðsett í miðbænum við torgið og smábátabryggjuna. Öll þjónusta, afþreying og söfn eru í 5-10 mínútna göngufæri. Sunnan við snjóflóðavarnagarðinn (Stóra bola) er annað svæði fyrir þá sem kjósa ró og frið og þaðan er stutt á golfvöllinn, í hesthúsabyggð og fuglavarp. Um 10 mínútna gangur er niður í miðbæ og þar er hús með salernum og aðstöðu.

Greitt er fyrir tjaldstæði á Síldarminjasafninu

Verð:
Tjöld: 700 kr. nóttin.
Hjólhýsi/fellihýsi/húsbílar: 1000 kr. nóttin.
Rafmagn: 300 kr. nóttin.
Hægt er að fá rafmagnsskott á Síldarminjasafninu gegn 3.000 kr. tryggingagjaldi sem er endurgreitt þegar því er skilað.
Hægt er að þvo og þurrka þvott á tjaldstæðinu, það kostar 250 kr. Hægt er að nálgast lykil að þvottaherbergi á Síldarminjasafninu.  

Tjaldstæði Ólafsfirði
Tjaldsvæðið í Ólafsfirðir er við Íþróttamiðstöðina. Þar er lítil tjörn með miklu fuglalífi og smásílum sem vinsælt er að veiða hjá yngri krökkunum.

Greitt er fyrir tjaldstæði í Íþróttamiðstöðinni

Verð:
Tjöld: 700 kr. nóttin.
Hjólhýsi/fellihýsi/húsbílar: 1000 kr. nóttin.
Rafmagn: 300 kr. nóttin.
Hægt er að fá rafmagnsskott í Íþróttamiðstöðinni gegn 3.000 kr. tryggingagjaldi sem er endurgreitt þegar því er skilað.
Hægt er að þvo og þurrka þvott í Íþróttamiðstöðinni, það kostar 250 kr.

Mynd augnabliksins

thjodlagahatid_a_siglufirdi_h_mg_1303.jpg
Fundargátt nefndarmanna
Sorphirða og flokkun
Opnunartímar
Snjómokstur
Veðrið á Ströndum og Norðurlandi-vestra
www.625.is
www.siglo.is

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning