Síldarævintýri

Íþróttir og tómstundir

Í Fjallabyggð er öflugt íþrótta og tómstundastarf þar sem allir ættu að geta fundið tómstundir og/eða íþróttir við sitt hæfi, hvort sem það er að renna fyrir fisk í höfninni, sparka bolta, skella sér í sund, fara á skíði eða í gönguferð um þær stórkostlegu náttúruperlur sem Fjallabyggð státar af.

Við sameiningu Siglufjarðar og Ólafsfjarðar árið 2006 í Fjallabyggð opnuðust nýjar leiðir varðandi nýtingu íþróttasvæða í sveitarfélaginu. Samnýting á mannvirkjum og mannskap mun gera okkur kleift að efla þá þjónustu og aðstöðu sem fyrir er.

Það er frístundanefnd sem fjallar um málefni á sviði íþrótta- og tómstunda.

Samkvæmt skipuriti Fjallabyggðar sem var samþykkt í bæjarstjórn 15. maí 2007 hefur íþrótta- og tómstundafulltrúi yfirumsjón með málaflokknum, einnig er hann starfsmaður frístundanefndar.

Mynd augnabliksins

thjodlagahatid_a_siglufirdi_v_mg_8498.jpg
Fundargátt nefndarmanna
Tillaga að aðalskipulagi
Sorphirða og flokkun
Opnunartímar
Listasafnið
www.625.is
www.siglo.is
Siglfirdingur.is
Norðurþjóðaverkefnið

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning