Síldarævintýri

Hvanndalir úr Héðinsfirði

Tími: 10-12 klst.

Map for the hike

Hvanndalir (1), eitt afskekktasta byggða ból á Íslandi um aldir, eru norðaustan Héðinsfjarðar (2), handan Víkurbyrðu (3) (890 m). Til að komast þangað þarf að fara "yfir Byrðuna" eða um Hvanndalaskriður (4), hinn versta veg. Hvanndalir voru nýttir vegna góðra landkosta fyrir sauðfé, en búseta var þar stopul. Þar hefur margt fátækt almúgafólk leitað frelsis og sjálfstæðis en orðið að flýja þennan harðbýla stað. Skömmu fyrir aldamótin 1900 keypti hreppsnefnd Hvanneyrarhrepps jörðina að Hvanndölum gagngert til að koma í veg fyrir að mannabyggð héldist þar lengur.

Sýrdalur(5) er lítið dalverpi austur undir Hvanndalabjargi (740 m). Ódáinsakur er sagður hafa verið bújörð í Sýrdal fyrr á öldum. Þar vaxa sérstök lífgrös sem eru þeirrar náttúru að þau veita mönnum líf og heilsu. Sagan segir að fyrrum hafi svo rammt kveðið að þessari náttúru að bærinn hafi verið fluttur að Hvanndölum því enginn hafi getað dáið á Ódáinsakri.

"Há eru og hrikaleg Hvanndalabjörg, þar eiga bergtröllin heimkynni og hörg", orti Jón Trausti. Hvanndalabjarg er við mynni Ólafsfjarðar að vestanverðu, eitt hæsta og ógurlegasta bjarg á Íslandi. Bóndakona í Málmey á Skagafirði sem brotið hafði þau álög að enginn mætti búa á eynni lengur en nítján ár, var numin brott af tröllskessunum í Hvanndalabjargi. Hálfdán Einarsson, prestur í Felli sem setið hafði í Svartaskóla samtíða Sæmundi fróða, flutti Málmeyjarbónda sjóleiðis á hesti sínum að Hvanndalabjargi. Þar var fyrir bóndakonan "krossi vígð, komin í bland við tröllin" og varð hún ekki þaðan tekin.

 

Mynd augnabliksins

img_1173.jpg
Fundargátt nefndarmanna
Tillaga að aðalskipulagi
Sorphirða og flokkun
Opnunartímar
Listasafnið
www.625.is
www.siglo.is
Siglfirdingur.is
Norðurþjóðaverkefnið

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning