Gjaldskrá
Byggingarleyfis- og þjónustugjöld
1. gr.
Fyrir yfirferð og samþykkt aðaluppdrátta og fylgiskjala þeirra, sem gerðir eru vegna nýbygginga, viðbygginga og breytinga á eldri byggingum í umdæmi Fjallabyggðar, skal byggingarfulltrúinn í Fjallabyggð í umboði bæjarstjórnar innheimta byggingarleyfisgjöld samkvæmt gjaldskrá þessari.
2. gr.
Byggingarleyfisgjöld.
Gjöldin miðast við eina yfirferð aðaluppdrátta. Innifalið er byggingarleyfi, útmæling og hæðarsetning, byggingareftirlit, lögbundnar úttektir, fokheldisvottorð og vottorð um lokaúttekt.
| Tegund byggingar | kr/m3 | Athugasemdir. | |
| A | Íbúðarhúsnæði | 60,- | Gjald þó ekki lægra en kr. 55.000,- |
| B | Iðnaðarhúsnæði | 60,- | Gjald þó ekki lægra en kr. 74.000,- |
| C | Verslun og þjónusta | 60,- | Gjald þó ekki lægra en kr. 74.000,- |
| D | Sérhæfðar byggingar | 60,- | Gjald þó ekki lægra en kr. 90.000,- |
| E | Frístundahús | 60,- | Gjald þó ekki lægra en kr. 45.000,- |
| F | Aðrar byggingar en tilgreindar í liðum A-E | 60,- | Gjald þó ekki lægra en kr. 45.000,- |
| G | Stækkun húsnæðis/viðbyggingar o.þ.h. | 60,- | Gjald þó ekki lægra en kr. 28.000,- |
| H | Niðurrif húsa | 0,- | Fast gjald kr. 5.000,- |
| I | Endurnýjun eldra byggingarleyfis | 0,- | Fast gjald kr. 5.000,- |
3. gr.
Rúmmetragjald samkvæmt 2. gr. skal reikna af brúttórúmmáli sbr. ákvæði ÍST 50, án svala og C rýma. Rúmmetra skal námunda í heilan rúmmetra samkvæmt almennum reiknireglum.
4. gr.
Byggingarfulltrúi annast innheimtu byggingarleyfisgjalda samkvæmt gjaldskrá þessari.
Gjöld samkvæmt gjaldskránni má innheimta með fjárnámi, sbr. 3. mgr. 55. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
5. gr.
Gjalddagi lágmarksgjalds er við móttöku byggingarleyfisumsóknar. Gjalddagi rúmmetragjalds er fyrir útgáfu byggingarleyfis. Byggingarfulltrúa er óheimil útgáfa byggingarleyfis, eða takmarkaðs byggingarleyfis, fyrr en byggingarleyfisgjald hefur verið greitt.
6. gr.
Byggingarleyfisgjald verður ekki endurgreitt falli byggingarleyfishafi frá notkun leyfisins
eða það fellur úr gildi.
7. gr.
Fyrir þjónustu sem veitt er af hálfu byggingarfulltrúa í umdæmi Fjallabyggðar, skal byggingarfulltrúinn í Fjallabyggð í umboði bæjarstjórnar innheimta þjónustugjöld samkvæmt gjaldskrá þessari.
8. gr.
Afgreiðslu- og þjónustugjöld
Fyrir ýmsa þjónustu sem byggingarfulltrúi veitir greiðist eftirfarandi gjöld
Tegund þjónustu Gjald kr.:
1 Afgreiðslugjald fast gjald á aðra liði en um getur í 2. og 8. gr. 1.200,- kr.
Gjaldið greiðist fyrir hverja einstaka afgreiðslu tækni- og umhverfisnefndar.
2 Útgáfa stöðuleyfis fyrir hjólhýsi, gáma o. þ.h,
a) Eingreiðsla við veitingu stöðuleyfisleyfis 70.000,- kr.
sem endurgreiðist þegar gámur er fjarlægður
b) Stöðuleyfisleyfi fyrir gáma, hjólhýsi o. þ. h. 17.500,- kr.
árgjald sem greiðist fyrirfram með gjalddaga í janúar hvert ár
3 Lóðarúthlutunargjald 12.000,-
Óendurkræft, þó lóðinni sé skilað aftur til bæjarins
4 Eignaskiptalýsingar, hver umfjöllun 5.000,-
5 Vottorð vegna vínveitingaleyfa 5.000,-
6 Fyrir húsaleiguúttekt 5.000,-
7 Fyrir úttekt á verkstöðu vegna lánveitingar 5.000,-
8 Fyrir breytingu á lóðarleigusamningi 25.000,-
9. gr.
Öll gjöld samkvæmt gjaldskráin miðast við vísitölu byggingarkostnaðar 1. janúar 2007 og reiknast á hverjum tíma í samræmi við gildandi byggingarvísitölu.
10. gr.
Gjaldskrá þessi var samþykkt af bæjarstjórn Fjallabyggðar 30. janúar 2007 með heimild í 53. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, með síðari breytingum, sbr. einnig 27. 28. og 29. gr. byggingarreglugerðar nr. 441/1998, öðlast gildi við birtingu.
Gjöld samkvæmt gjaldskránni má innheimta með fjárnámi, sbr. 3. mgr. 55. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997
Fjallabyggð, …………. 2007.
Þórir Kr. Þórisson bæjarstjóri







