Skrá yfir fugla Siglufjarðar samkæmt athugunum
Eitt af því sem einkennir Siglufjörð er mikið fuglalíf allt árið um kring. Um 2000 fuglar af 16-18 tegundum eru taldir að jafnaði í Siglufirði í jólatalningu Náttúrufræðistofnunar. Enn fleiri tegundir teljast til siglfirskra varpfugla og fer þeim sífjölgandi sem reyna varp hvort sem þær festa sig í sessi sem fastir varpfuglar eða ekki.Langmesta og fjölbreytilegasta fuglalífið er í kringum Leirurnar svo nefndu, flæðisanda innst í firðinum. Þar hefur frá því um 1980 orðið til allstórt kríu- og æðarvarp, beggja megin fjarðar. Ætla má að 1980 hafi 50 kríur og 20-30 æðarfuglar verpt á svæðinu. Árið 1997 voru varpfuglarnir margfalt fleiri eða á.a.g. 500 kríupör og 750 æðarpör.
Áður fyrr var umtalsvert kríuvarp á Úlfsdölum, í Héðinsfirði og á Siglunesi, en á öllum þessum stöðum lagðist varp niður að mestu er fólkið flutti burtu. Greinilegt var hve þessum fugli fjölgaði inni í firðinum eftir að Siglunes fór í eyði.
Skýringar: A = dvelur allt árið. V = vetrarfugl. S = sumarfugl. O = fastur varpfugl. o = óreglulegur varpfugl. G = gestur.
|
|
- Aðrir fuglar, útlenskir flækingar og fargestir sem sést hafa á Siglufirði eru þessir:
- Gráhegri, helsingi, brandönd, vepja, rauðbrystingur, skógarsnípa, fjöruspói, tildra, bjartmávur, hringdúfa, turtildúfa, eyrugla, múrsvölungur, bakkasvala, landsvala, silkitoppa, glóbrystingur, svartþröstur, gráþröstur, söngþröstur, sefsöngvari, hettusöngvari, gransöngvari, bókfinka, fjallafinka, barrfinka, rósafinka, krossnefur.









