Síldarævintýri

Fossdalur

Ein er sú leið frá Kleifum sem vert er að skoða en það er leiðin út í Fossdal sem liggur ystur af dölum Ólafsfjarðar. Dalurinn er umlukinn þverhníptum björgum og er þeirra mest Hvanndalabjarg, en á brúnum þess eru héraðsmörk Ólafsfjarðar að norðan. Við fyrstu sýn virðist dalurinn algjörlega lokaður en þó eru leiðir upp úr honum til Hvanndala.

Þegar gengið er í Fossdal er farið frá Ytri-Á og gengið norður með hlíðum Arnfinnsfjalls. Gengið er á velgrónu landi þar sem mest ber á lyngi og kjarrgróðri enda er þar eitt besta berjaland Ólafsfjarðar. Gangan er létt, fylgt er kindaslóðum. Víða eru gil á leiðinni en þau eru mjög vel fær enda slóðir markaðar í þau. Eftir um eins tíma göngu er komið út að vita sem staðsettur er í mynni dalsins, uppi á svonefndum Sauðhólsmel. Eftir dalnum rennur á og fellur fram af bjargbrúninni í sjó fram. Ber dalurinn og áin nafn af þessum fossi sem sést vel af sjó.

Göngubrú er að öllu jöfnu yfir ána en hún getur verið vatnsmikil á vorin enda snjóþungt í dalnum. Um tvær leiðir er að velja til að komast á Hvanndali: Stuttaleið og Vestaravik, stundum nefnt Langaleið. Vegna þess hve Stuttaleið er vandrötuð verður henni ekki lýst hér. Þegar farið er Vestaravik er farið fram í dalbotninn. Gengið er upp brattan hjalla, síðan upp aflíðandi drag og við blasir nú Hvanndalsbotn.

Sýrdalur er lítið dalverpi á milli Hvanndals og Hvanndalabjargs. Í Sýrdal er gengið af Hvanndölum upp í svonefnda Selskál og er hún sérstæð náttúrusmíð, berghamrar nær á alla vegu, lítil tjörn og í kringum hana grasi grónir balar. Bergmál er mikið í skálinni. Ganga til Hvanndala tekur um fjóra tíma.

Mynd augnabliksins

jonsmessuhatid_a_siglufirdi_v_mg_7078.jpg
Fundargátt nefndarmanna
Tillaga að aðalskipulagi
Sorphirða og flokkun
Opnunartímar
Listasafnið
www.625.is
www.siglo.is
Siglfirdingur.is
Norðurþjóðaverkefnið

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning