Síldarævintýri

Ferðaþjónusta

Sveitarfélagið Fjallabyggð varð til við sameiningu Ólafsfjarðarbæjar og Siglufjarðarkaupstaðar árið 2006. Í Fjallabyggð búa um 2200 manns. Á milli kaupstaðanna eru um 62 km þegar farið er yfir Lágheiði. Heiðin er hins vegar yfirleitt lokuð yfir vetrartímann vegna snjóþyngsla og þarf þá að fara lengri leiðina sem er 234 km. Með tilkomu nýrra ganga sem verða tilbúin haustið 2009 mun leiðin á milli bæjarkjarnanna styttast niður í 15 km.

Fyrir ferðamenn og útivistarfólk er margt skemmtilegt að skoða og gera í Fjallabyggð. Á veturna er staðurinn skíðaparadís og draumur útivistarmannsins. Hægt er að fara á svigskíði, gönguskíði, skauta, þeytast um á snjósleða eða dorga í Ólafsfjarðarvatni.

Á sumrin eru það fjöllin, vatnið og svört sandfjaran sem heilla. Í stórbrotnu landslagi Fjallabyggðar má finna fjölbreyttar gönguleiðir um fjöll og dali og njóta einstaks útsýnis í kyrrð og ró. Afþreyingarmöguleikar eru nánast ótæmandi. Í Fjallabyggð er boðið er upp á sjóstöng og auk þess er hægt að stunda stangveiðar í Ólafsfjarðará, í Ólafsfjarðarvatni, í Héðinsfirði, og í Hólsá á Siglufirði. Svo má ekki gleyma því að hægt er að veiða á bryggjum bæjanna. Miðnætursiglingar og ferðir yfir heimskautsbaug eru einnig í boði. Möguleiki er á að skipuleggja sjóferðir að misjöfnu áhugasviði fólks t.d. að setja saman göngu- og siglingapakka þar sem gengið yrði út í Héðinsfjörð og siglt heim.  Í Fjallabyggð er tveir 9 holu golfvellir, tvær sundlaugar þar af er önnur útisundlaug.

Síldarminjasafnið er staðsett á Siglufirði, en það  er stærsta sjóminja- og iðnaðarsafn landsins og í Evrópu allri. Í þremur ólíkum húsum er hægt að kynna sér síldveiðar og vinnslu á silfri hafsins. Síldarminjasafnið hlaut Evrópuverðlaun safna, Michletti verðlaunin árið 2004. Á Siglufirði er einnig Þjóðlagasetur og í Ólafsfirði er glæsilegt náttúrgripasafn með fjölda uppstoppaðra fugla.

Mynd augnabliksins

nikulasarmot_a_olafsfirdi_h_mg_1959.jpg
Fundargátt nefndarmanna
Tillaga að aðalskipulagi
Sorphirða og flokkun
Opnunartímar
Listasafnið
www.625.is
www.siglo.is
Siglfirdingur.is
Norðurþjóðaverkefnið

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning