Dagþjónusta aldraðra er ætlað sem stuðningsúrræði við þá sem að staðaldri þurfa eftirlit og umsjá til að geta búið áfram heima. Dagþjónusta aldraðra er starfrækt í Skálarhlíð á Siglufirði og Hornbrekku á Ólafsfirði.
Megináherslur í starfi dagþjónustu aldraðra er að:
- Rjúfa félagslega einangrun og efla þátttöku í daglegum athöfnum.
- Stuðla að lengri búsetu heima.
- Gera hvern dag sem ánægjulegastan.
- Hafa daglegt eftirlit með heilsufari.
Starfsemin er meðal annars byggð upp á samverustundum, blaðalestri, útiveru og
gönguferðum, afþreyingu, handavinnu og leikfimi.
Boðið er upp á morgunmat, hádegismat og miðdagskaffi. Einnig er í boði akstur
að heiman og heim fyrir þá sem þess óska.









