Ferðaþjónusta Siglufjarðar í Siglufirði býður upp á bátsferðir þar sem hægt er að upplifa sitt lítið af hverju. Boðið er upp á hvalaskoðun, línuveiðar og beitingu, sjóstangveiði, miðnætursiglingar, siglingar til Grímseyjar og yfir heimskautsbaug svo eitthvað sé nefnt. Í Ólafsfirði er ekki um að ræða skipulagðar ferðir og þjónustu, en trillukarlarnir eru viðmótsþýðir og greiðviknir. Ferðalangar þurfa því ekki að vera feimnir við að spyrja. Góðar líkur eru á að finna trillukarla á spjalli í „Mummabúð“ (Merkt „Valberg“) í Strandgötu ef enginn finnst á bryggjunni.
Flýtilyklar
Á næstunni
31.07.2010 1.08.2010 2.08.2010 6.08.2010 7.08.2010 8.08.2010









