Bæjarstjóri Fjallabyggðar er Þórir Kristinn Þórisson. Þórir er kvæntur Erlu Bjartmarz, sjálfstæðum atvinnurekanda á sviði heilsu og fæðubóta og eiga þau tvær dætur, Evu Cörlu og Alexöndru. Þórir er meistari í rafeindavirkjun og starfaði áður sem framkvæmdastjóri þjónustusviðs og deildarstjóri prentsmiðjulausna hjá Nýherja. Hann á að baki fjölda námskeiða varðandi tölvur, hugbúnað, kerfisfræði og stjórnun.
Þórir tók við starfi bæjarstjóra 1. september 2006.







