Eftir 1990 jókst mjög útgerð rækjuveiðiskipa frá Siglufirði og við lok 20. aldar hafði rækjan tekið við af þorski í landvinnslu frystihúsanna.
Undanfarin áratug hafa orðið gríðarlegar breytingar á atvinnuháttum á Siglufirði, störfum við fiskveiðar og vinnslu hefur fækkað jafnt og þétt og eru ekki sá grunnur sem þau hafa verið í atvinnulífi staðarins. Leitað hefur verið nýrra leiða sem gefist hafa misvel. Fjarvinnsla fyrir stofnanir af ýmsu tagi er ein þeirra leiða sem reynst hafa vel og útlit er fyrir fleiri störf í þeim geira, vélsmíði og bátasmíði er annar vaxtarsproti sem vakið hefur athygli og skapað ný störf og fleira mætti telja.









