28. júlí 2010

94. fundur skipulags- og umhverfisnefndar Fjallabyggðar
haldinn í ráðhúsinu á Siglufirði miðvikudaginn 28. júlí 2010 og hófst hann kl. 16:30.

Fundinn sátu: Kristinn Gylfason, Magnús Albert Sveinsson, Elín Þorsteinsdóttir, Sigurður Hlöðversson, Stefán Ragnar Hjálmarsson og Valur Þór Hilmarsson.
Fundargerð ritaði: Valur Þór Hilmarsson, Umhverfisfulltrúi.

Fyrir var tekið:

1.  1007090 - Deiliskipulag - Eyrarflöt Siglufirði
Fulltrúi X2 ehf. Ómar Ívarsson kemur á fund nefndarinar til að kynna tillögur
Ómar kynnti tillögur að deiliskipulagi á Eyrarflöt á Siglufirði.
   
2.  1003111 - Deiliskipulag -Flæðar
Fulltrúi X2 ehf. Ómar Ívarsson kemur á fund nefndarinnar til að kynna tillögur
Ómar kynnti drög að deiliskipulagi fyrir Flæðar.
Nefndin lýsti ánægju sinni með hugmyndirnar í heild sinni, umræða varð um stígagerð með vatninu m.a. með tilliti til fuglaverndar.
   
3.  1002121 - Deiliskipulag við Túngötu, Siglufirði
Fulltrúi X2 ehf. Ómar Ívarsson kemur á fund nefndarinnar til að kynna tillögur
Ómar kynnti tillögur að deiliskipulagi við Túngötu á Siglufirði, gamla fótboltavellinum.
Umræður urðu um tillögurnar og skiptar skoðanir um hana.
   
4.  0910037 - Framkvæmdir í Héðinsfirði
Vegir að Héðinsfjarðarvatni í Fjallabyggð.  Tilkynning um matsskyldu.
Erindi hefur borist frá Skipulagsstofnun dagsett 1. júlí 2010 þar sem óskað er eftir umsögn Fjallabyggðar um hvort og á hvaða forsendum ofangreind framkvæmd skuli háð mati á umhverfisáhrifum og teknu tilliti til 3. viðauka í 6. gr. laga nr. 106/2000 og 11 gr. reglugerðar nr. 1123/2005 um mat á umhverfisáhrifum.
Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar telur að áhrif framkvæmdarinnar séu háð mati á umhverfisáhrifum að teknu tilliti 3. viðauka atriða 2 iii. (c) svæða innan 100m fjalægðar frá fornleifum sem njóta verndar samkvæmt þjóðminjalögum, lið 2 iv. (a) votlendissvæði og lið 2 iv. (h) svæða sem hafa sögulegt, menningarlegt eða fornfræðilegt gildi.
 
Undir þessum lið vék Elín af fundi.
   
5.  1007081 - Skemma á Bakka, Ólafsfirði
Eyþór Eyjólfsson fyrir hönd Reykholts ehf. sækir um að véla/verkfærageymsla í landi Bakka, Ólafsfirði verði skilgreind sem bílskúr. Nefndin samþykkir erindið.
   
6.  1007084 - Túngata 29b - breyting og stækkun
Sigurður Jóhannsson óskar eftir leyfi til að byggja við og gera breytingar á húseigninni Túngötu 29b skv. meðfylgjandi teikningum. Erindi samþykkt að undangenginni grendarkynningu í nærliggjandi húsum Túngötu 29 og 31b, Hvanneyrarbraut 24.
   
7.  1007082 - Umsókn um byggingarleyfi
Haraldur Björnsson fyrir hönd fjáreigendafélags Siglufjarðar sækir um byggingarleyfi á gamla flugvellinum við Ráeyri.
Nefndin hafnar erindinu á þeim forsendum að ekki er gert ráð fyrir þesskonar starfsemi á þessu svæði.
Nefndin leggur áherslu á að lokið verði við deiliskipulag fyrir frístundabúskap á Siglufirði sem ekki hefur verið afgreitt.
   
8.  1007083 - Umsókn um byggingarleyfi
Mikael G. Mikaelsson sækir um leyfi til að byggja bjálkahús á Vermundarstöðum, Ólafsfirði.
Erindi samþykkt.
   
9.  1007091 - Sumarhúsaeigendur í Hólkoti - úrbætur
Fyrir hönd sumarhúsaeigenda í landi Hólkots í Ólafsfirði senda Haukur Sigurðsson og Jón Dan Jóhannsson bréf með ósk um úrbætur á svæðinu. Óskað er eftir að gengið verði frá vatnslögn í brunahana á svæðinu. Einnig að klárað verði að girða svæðið fyrir neðan hús nr. 4,5,6 og 7.
Í þriðja lagi er óskað eftir að borið verið ofan í veginn svo hægt sé að ganga hann með góðu móti.
Byggingafulltrúi upplýsti að unnið sé í girðingarvinnu nú þegar. Farið verður í uppsetningu á brunahana sem fyrst. Hönnunarvinna vegna vega, vatns- og fráveitu er í vinnslu og stefnt að því að uppbygging á veginum verði boðin út á næsta ári.
Byggingafulltrúi mun svara framlögðu bréfi.
   
10.  1006009 - Klæðning Aðalgötu 32, Siglufirði
Óskað var eftir að taka fyrir umræðu um klæðningu á húsi við Aðalgötu 32,  Siglufirði, erindi sem nefndin hafði hafnað á fyrri fundi. Fundarmenn samþykktu að taka málið fyrir. 
Nefndin samþykkir að halda sig við bókun 93. fundar. 
   
Fleira ekki gert.  Fundi slitið kl. 20:45.

Höfundur: Ólafur Þór Ólafsson - Uppfært: 11.08.2010

Mynd augnabliksins

thjodlagahatid_a_siglufirdi_h_mg_1170.jpg
Fundargátt nefndarmanna
Tillaga að aðalskipulagi
Sorphirða og flokkun
Opnunartímar
Listasafnið
www.625.is
www.siglo.is
Siglfirdingur.is
Norðurþjóðaverkefnið

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning