24. júní 2010

92. fundur skipulags- og umhverfisnefndar Fjallabyggðar
haldinn í fundarherbergi syðra á Siglufirði fimmtudaginn 24. júní 2010 og hófst hann kl. 16:30.

Fundinn sátu: Stefán Ragnar Hjálmarsson, Valur Þór Hilmarsson, Kristinn Gylfason, Magnús Albert Sveinsson, Elín Þorsteinsdóttir, Hilmar Þór Elefsen og Sigurður Hlöðversson.
Fundargerð ritaði: Valur Hilmarsson, Umhverfisfulltrúi.

Fyrir var tekið:

1.  1006068 - Formreglur stjórnsýslunnar
Nefndarmönnum kynntar helstu formreglur stjórnsýslunnar.
   
2.  1006074 - Drengskaparheit um þagnarskyldu
Lögð fram blöð þar sem hver nefndarmaður skrifaði undir drengskaparheit um þagnarskyldu.
   
3.  0910037 - Framkvæmdir í Héðinsfirði
Undir þessum lið vék Elín Þorsteinsdóttir af fundi.
Lögð fram tvö bréf frá Skipulagsstofnun varðandi framkvæmdir í Héðinsfirði. Bréfin hafa áður verið lögð fram og eru hér sett fram til kynningar fyrir nýja nefndarmenn, ásamt tilkynningu sem unnin er af Teikn á lofti fyrir landeigendur í Héðinsfirði, Vegagerðina og Fjallabyggð, um framkvæmdir, sem ekki hafa verið tilkynntar til Skipulagsstofnunar. Nefndin samþykkir að senda tilkynninguna til umsagnar.
Nefndin fer þess á leit við landeigendur að þeir feli einhverjum skýrt umboð til að fara með málefni þeirra í samskiptum við sveitafélagið.
   
4.  1006067 – Hænur
Marín Gústafsdóttir Hólavegi 67 hefur lagt inn umsókn um að mega halda hænur og einn hana á íbúðalóð sinni.
Nefndin tekur vel í erindið og samþykkir að málið fari í grendarkynningu hjá nágrönnum, Hólavegi 63 til 73.
   
5.  1006009 - Klæðning Aðalgötu 32, Siglufirði
Siglunes hf. fyrir hönd allra eigenda Aðalgötu 32 Siglufirði óskar eftir leyfi til að klæða suður- og austurhlið hússins, samanber meðfylgjandi ljósmyndir.  Nefndin beinir því til húseigenda að skoða aðra klæðningu á neðri hæðina en þá sem rætt er um í umsókninni t.d. Ímúr klæðningu sem hæfir betur upprunalegu útliti hússins. Einnig er bent á að gluggar verði færðir út í klæðningu til að halda fyrra útliti. Óskað er eftir útlitsteikningum.
Nefndin telur það mjög brýnt að marka stefnu varðandi varðveilsu og ásýnd húsa í sveitafélaginu og fyrsta skrefið verði að taka fyrir miðbæjarsvæðið á Siglufirði.
Í tillögum að nýju aðalskipulagi er gert ráð fyrir hverfisverndarsvæði og vill nefndin útvíkka það yfir miðbæinn.
   
6.  1006031 - Laugarvegur 5, Siglufirði, svalir
Undir þessum lið vék Stefán Ragnar Hjálmarsson af fundi.
Hansína Ásta Jóhannsdóttir eigandi efri hæðar að Laugarvegi 5 óskar eftir að endurnýja byggingaleyfi fyrir byggingu svala á suðurhlið hússins í samræmi við áður samþykktar teikningar.
Meðfylgjandi erindinu er bréf íbúa neðri hæðar sem er alfarið á móti framkvæmdinni.
Nefndin setur sig ekki á móti framkvæmdinni en húseigendurnir verða að finna lausn á málinu.
   
7.  1006046 - Leyfi fyrir götusölu
Kolbrún Gunnarsdóttir Eyrargötu 20 Siglufirði, óskar eftir leyfi til götusölu framan við Bátahúsið á Siglufirði.
Erindi samþykkt.
   
8.  1006052 - Umsókn um legu háspennukapla í Ólafsfirði
Samþykkt var með öllum atkvæðum að taka þennan lið á dagskrá.
Nefndin samþykkir fyrir sitt leyti erindi RARIK.   

Fleira ekki gert.  Fundi slitið kl. 18:45.

Höfundur: Hafdís Jónsdóttir - Uppfært: 25.06.2010

Mynd augnabliksins

thjodlagahatid_a_siglufirdi_h_mg_1363.jpg
Fundargátt nefndarmanna
Tillaga að aðalskipulagi
Sorphirða og flokkun
Opnunartímar
Listasafnið
www.625.is
www.siglo.is
Siglfirdingur.is
Norðurþjóðaverkefnið

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning