Flýtilyklar
Leit
23. júní 2010
174. fundur bæjarráðs Fjallabyggðar
haldinn sem fjarfundur í ráðhúsinu á Siglufirði og á bæjarskrifstofunum í Ólafsfirði miðvikudaginn 23. júní 2010 og hófst hann kl. 08:15.
Fundinn sátu: Ólafur Helgi Marteinsson, Ingvar Erlingsson, Egill Rögnvaldsson, Þórir Kristinn Þórisson, Ólafur Þór Ólafsson og Sigurður Hlöðversson.
Fundargerð ritaði: Ólafur Þór Ólafsson, skrifstofu- og fjármálastjóri.
Fyrir var tekið:
1. 1006030 - Blað um Héðinsfjarðargöng
Útgáfufélagið Goggur ehf. óskar í erindi sínu eftir samvinnu við Fjallabyggð um útgáfu blaðs um Héðinsfjarðargöng.
Bæjarráð samþykkir að taka þátt í verkefninu.
2. 1006056 - Áheyrnarfulltrúi í bæjarráði Fjallabyggðar
Í framhaldi af samþykkt 51. fundar bæjarstjórnar um áheyrnarfulltrúa í bæjarráði, þarf að vísa áætluðum kostnaði til endurskoðunar á fjárhagsáætlun 2010. Áheyrnarfulltrúi T listans er Bjarkey Gunnarsdóttir og til vara Sigurður Hlöðversson.
Eftirfarandi tillaga var lögð fram af Ólafi H. Marteinssyni og Ingvari Erlingssyni.
"Greiðslur fyrir áheyrnarfulltrúa í bæjarráði skal vera sambærileg og fyrir nefndarlaun kr. 7.200 fyrir hvern fund."
Að ósk Egils Rögnvaldssonar var afgreiðslu tillögunnar frestað.
Dagskrárlið frestað.
3. 1004045 - Ráðning verkstjóra í þjónustumiðstöð
Samþykkt var með 3 atkvæðum að taka þennan lið á dagskrá.
Ingvar Erlingsson vék af fundi undir þessum dagskrárlið.
Bæjarstjóri kynnti stöðu mála.
Bæjarráð samþykkir að taka til endurskoðunar ákvörðun bæjarstjórnar í málefnum þjónustumiðstöðvar Fjallabyggðar.
Í ljósi þess samþykkir bæjarráð að fela bæjarstjóra að óska eftir því að núverandi verkstjórar starfi til loka september.
4. 1006065 - Fjárhagslegt yfirlit málaflokka jan-apr 2010
Lagt fram til kynningar málaflokkayfirlit Fjallabyggðar fyrir rekstur tímabilsins, janúar - apríl 2010.
5. 1006076 - Aukabæjarstjórnarfundur 30 júní
Forseti bæjarstjórnar og formaður bæjarráðs tilkynntu um boðun aukafundar bæjarstjórnar 30. júní kl. 17.00 í ráðhúsinu Siglufirði.
Eitt mál verður á dagskrá, ráðning bæjarstjóra.
Formaður bæjarráðs tilkynnti jafnframt ráðningu bæjarstjóra, Sigurðar Vals Ásbjarnarsonar frá 1. júlí 2010.
6. 1006066 - Fundargerð 214. fundar stjórnar Eyþings frá 10. júní 2010
Fundargerð lögð fram til kynningar.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 9:50.









