Flýtilyklar
Leit
21. maí 2010
Barnaverndarnefnd Úteyjar
24. fundur – 3/2010
Barnaverndarnefnd Úteyjar fundaði í fjarfundarbúnaði föstudaginn 21. maí 2010 kl. 9:30 á bæjarskrifstofunni á Siglufirði og bæjarskrifstofunni í Ólafsfirði. Mættir voru undirritaðir og sátu fundinn ásamt félagsmálastjóra Fjallabyggðar, félagsráðgjafa Fjallabyggðar og félagsmálastjóra Dalvíkurbyggðar.
Fyrir var tekið:
1. Umræða um dagskrá, fundargerð síðasta fundar
Fundargerð síðasta fundar lögð fram, án athugasemda.
2. Trúnaðarmál
Bókað í trúnaðarmálabók.
3. Aðsend erindi
a) Félagsmálastjóri Dalvíkurbyggðar lagði fram erindi frá Barnaverndarstofu þar sem fram kemur Barnaverndarstofa vekur athygli á því að barnaverndarnefndum ber að tilkynna til stofunnar um öll heimili sem fá leyfi til að taka börn í sumardvöl skv. 86. gr. barnaverndarlaga sbr. 18. gr. reglugerðar nr. 652/2004 og 20. gr. reglugerðar nr. 366/2005. Átt er við þau heimili sem fá nýtt leyfi það ár eða endurnýjað leyfi. Aldrei skal veita leyfi til lengri tíma en eins árs en óski viðkomandi eftir endurnýjuðu leyfi er heimilt að veita það til þriggja ára í senn, sbr. 17. gr. reglugerðar nr. 652/2004 og 19. gr. reglugerðar nr. 366/2005. Barnaverndarstofa heldur skrá yfir þau heimili sem eru með leyfi en starfsmenn félagsþjónustu og barnaverndar leita gjarnan til stofunnar eftir upplýsingum um heimili sem hafa leyfi til að taka börn í sumardvöl.
b) Félagsmálastjóri Dalvíkurbyggðar lagði einnig fram bréf frá Barnaverndarstofu þar sem kynnt eru tvö ný úrræði rekin af stofnuninni. Annað er um Vistheimilið Hamarskot sem ætlað er unglingum frá 16 ára aldri sem hafa lokið grunnskóla, hafa lokið meðferð á vegum Barnaverndarstofu og eiga ekki afturkvæmt á heimili sitt og barnaverndarnefnd þarf að ráðstafa skv. 25. gr. barnaverndarlaga. Hamarskot getur einnig tekið á móti þunguðum konum sem barnaverndarnefndir telja nauðsynlegt að fái aðhlynningu og meðferð á viðeigandi stofnun, sbr. 30. gr. barnaverndarlaga. Barnaverndarstofu og viðkomandi barnaverndarnefnd ber að meta þarfir viðkomandi konu í samráði við rekstraraðila áður en til vistunar hennar kemur.
Hitt er sálfræðiþjónusta við börn sem sýna af sér óæskilega kynferðislega hegðun.
4. Samtölublað til barnaverndarstofu vegna barnaverndarmála Barnaverndar-nefndar Úteyjar árið 2009
Frestað til næsta fundar.
5. Önnur mál
Engin önnur mál.
Næsti fundur nefndarinnar verður á Dalvík, þriðjudaginn 25. maí. kl. 8:15
Fleira ekki gert, fundargerð upplesin og fundi slitið kl. 11:15
Ómar Pétursson
Heiða Hilmarsdóttir
Guðlaug Guðmundsdóttir
Guðrún Ólöf Pálsdóttir
Guðrún Unnsteinsdóttir









