Flýtilyklar
Leit
21. janúar 2010
45. fundur bæjarstjórnar Fjallabyggðar var haldinn í Tjarnarborg Ólafsfirði fimmtudaginn 21. janúar 2010 og hófst hann kl. 17.00.
Fundinn sátu: Þorsteinn Ásgeirsson, Hermann Einarsson, Egill Rögnvaldsson, Jónína Magnúsdóttir, Jóna Vilhelmína Héðinsdóttir, Guðmundur Skarphéðinsson, Bjarkey Gunnarsdóttir, Kristján Hauksson, Helga Jónsdóttir, Þórir Kr. Þórisson og Ólafur Þór Ólafsson.
Fundargerð ritaði: Ólafur Þór Ólafsson, skrifstofu og fjármálastjóri.
Fyrir var tekið:
1. Bæjarráð Fjallabyggðar – 156. fundur – 7. janúar 2010.
Bæjarstjóri Þórir Kr. Þórisson gerði grein fyrir fundargerð.
Afgreiðsla 156. fundar staðfest á 45. fundi bæjarstjórnar með 9 atkvæðum.
2. Bæjarráð Fjallabyggðar – 157. fundur – 15. janúar 2010.
Bæjarstjóri Þórir Kr. Þórisson gerði grein fyrir fundargerð.
Til máls tóku Guðmundur Skarphéðinsson, Jónína Magnúsdóttir, Egill Rögnvaldsson og Þórir Kr. Þórisson.
Afgreiðsla 157. fundar, staðfest á 45. fundi bæjarstjórnar með 9 atkvæðum.
3. Bæjarráð Fjallabyggðar – 158. fundur – 20. janúar 2010.
Bæjarstjórn samþykkti með 9 atkvæðum heimild til að taka á dagskrá fundargerð 158. fundar bæjarráðs.
Bæjarstjóri Þórir Kr. Þórisson gerði grein fyrir fundargerð.
Afgreiðsla 158. fundar staðfest á 45. fundi bæjarstjórnar með 9 atkvæðum.
4. Félagsmálanefnd Fjallabyggðar – 37. fundur – 16. desember 2009.
Til máls tók Þórir Kr. Þórisson.
Afgreiðsla 37. fundar staðfest á 45. fundi bæjarstjórnar með 9 atkvæðum.
5. Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar – 82. fundur – 16. desember 2009.
Formaður skipulags- og umhverfisnefndar, Guðmundur Skarphéðinsson gerði grein fyrir fundargerð.
Til máls tóku Egill Rögnvaldsson, Guðmundur Skarphéðinsson og Bjarkey Gunnarsdóttir.
Liður 5.9 Rafmagnsöryggi/þjónusta rafverktaka.
Afgreiðsla 82. fundar staðfest á 45. fundi bæjarstjórnar með 7 atkvæðum. Hermann Einarsson og Egill Rögnvaldsson sátu hjá.
Liður 5.10 Aðalgata 35 Ólafsfirði.
Afgreiðsla 82. fundar staðfest á 45. fundi bæjarstjórnar með 5 atkvæðum.
Þorsteinn Ásgeirsson, Bjarkey Gunnarsdóttir, Jóna Vilhelmína Héðinsdóttir og Egill Rögnvaldsson sátu hjá.
Afgreiðsla 82. fundar að öðru leyti staðfest á 45. fundi bæjarstjórnar með 9 atkvæðum.
6. Skipulags- og umhversnefnd Fjallabyggðar – 83. fundur – 14. janúar 2010.
Formaður skipulags- og umhverfisnefndar, Guðmundur Skarphéðinsson gerði grein fyrir fundargerð.
Til máls tóku Egill Rögnvaldsson, Bjarkey Gunnarsdóttir og Guðmundur Skarphéðinsson.
Liður 6.3 Grjótnám á Siglunesi.
Afgreiðsla 83. fundar staðfest á 45. fundi bæjarstjórnar með 8 atkvæðum. Egill Rögnvaldsson sat hjá.
Liður 6.12 Ósk um breytingu á útliti.
Afgreiðsla 83. fundar staðfest á 45. fundi bæjarstjórnar með 8 atkvæðum.
Bjarkey Gunnarsdóttir sat hjá.
Afgreiðsla 83. fundar að öðru leyti staðfest á 45. fundi bæjarstjórnar með 9 atkvæðum.
7. Hafnarstjórn Fjallabyggðar – 22. fundur – 18. desember 2009.
Hafnarstjóri, Þórir Kr. Þórisson gerði grein fyrir fundargerð.
Til máls tóku Guðmundur Skarphéðinsson, Þórir Kr. Þórisson og Bjarkey Gunnarsdóttir.
Afgreiðsla 22. fundar staðfest á 45. fundi bæjarstjórnar með 9 atkvæðum.
8. Fræðslunefnd Fjallabyggðar – 41. fundur – 21. desember 2009.
Til máls tók Kristján Hauksson.
Afgreiðsla 41. fundar staðfest á 45. fundi bæjarstjórnar með 9 atkvæðum.
9. Almannavarnarnefnd Fjallabyggðar – 4. fundur – 13. janúar 2010.
Til máls tók Guðmundur Skarphéðinsson.
Afgreiðsla 83. fundar staðfest á 45. fundi bæjarstjórnar með 9 atkvæðum.
10. Framtíðarskipan fræðslumála í Fjallabyggð.
Undir þessum dagskrár lið véku fimm fulltrúar sæti, þau Jónína Magnúsdóttir, Kristján Hauksson, Guðmundur Skarphéðinsson, Bjarkey Gunnarsdóttir og Jóna Vilhelmína Héðinsdóttir.
Í þeirra stað komu Anna María Elíasdóttir, Snjólaug Ásta Sigurfinnsdóttir, Hörður Ólafsson, Rögnvaldur Ingólfsson og Gunnar Reynir Kristinsson.
Til máls tóku: Anna María Elíasdóttir, Þórir Kr Þórisson, Egill Rögnvaldsson, Hermann Einarsson, Anna María Elíasdóttir, Rögnvaldur Ingólfsson, Helga Jónsdóttir, Gunnar Reynir Kristinsson og Þorsteinn Ásgeirsson.
Eftirfarandi bókun var samþykkt með 9 atkvæðum.
Bæjarstjórn Fjallabyggðar samþykkir framlagðar tillögur fræðslunefndar um framtíðarskipan fræðslumála í Fjallabyggð sem kynntar voru á fundi bæjarstjórnar þann 15 desember s.l.
Í þeim felst að Tónskóli Ólafsfjarðar og Tónlistarskóli Siglufjarðar verði sameinaðir í eina stofnun, Leikskólarnir Leikhólar og Leikskálar í eina stofnun og Grunnskóli Ólafsfjarðar og Grunnskóli Siglufjarðar í eina stofnun. Við það verða þrjár fræðslustofnanir í Fjallabyggð, þ.e. Tónskóli Fjallabyggðar, Leikskóli Fjallabyggðar og Grunnskóli Fjallabyggðar í stað sex eins og nú er. Nýjar stofnanir taki til starfa að hausti 2010.
Allar stofnanirnar reki starfsstöðvar á Siglufirði og í Ólafsfirði. Skipulagður verði skólaakstur milli byggðarkjarnanna fyrir 7. - 10. bekk eftir opnun Héðinsfjarðarganga og stefnt að sameiningu yngra stigs skólaárið 2012-13. Ráðnir verði skólastjórar og aðstoðarskólastjórar við allar stofnanir sem hafi starfsstöð hvor í sínum bæ til að tryggja aðgengi að stjórnanda.
Bæjarstjórn felur bæjarstjóra að auglýsa eftir skólastjórum nýrra skólastofnana og útfæra breytingarnar með tilliti til starfsmannamála, í samráði við lögfræðinga og hlutaðeigandi stéttarfélög. Tillögurnar skulu lagðar fyrir bæjarstjórn á fundi hennar í febrúar.
11. Úttekt á rekstri þjónustumiðstöðva í Fjallabyggð.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum að kynna starfsmönnum þjónustumiðstöðva og tæknideildar, þær hugmyndir sem nú liggja fyrir um framtíðarskipan þjónustumiðstöðva í sveitarfélaginu.
Á febrúarfundi bæjarstjórnar verður tillagan tekin til afgreiðslu.
12. Gjaldskrár 2010.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum fyrirliggjandi gjaldskrár Fjallabyggðar fyrir árið 2010.
13. Fjárhagsáætlun 2010.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir forsendum og niðurstöðu áætlunarinnar.
Niðurstöður A og B hluta.
Heildartekjur eru 1.547 milljónir kr. og þar af eru skatttekjur og framlag Jöfnunarsjóðs 1.084 milljónir kr. eða sem nemur 70%. Skatttekjur og framlag Jöfnunarsjóðs lækka um 14 mkr. miðað við endurskoðaða áætlun ársins 2009, eða um 1,3%. Skýrist það helst af lækkun á framlagi Jöfnunarsjóðs.
Heildarútgjöld sveitarfélagsins eru 1.555 mkr. án fjármagnsliða. Þar af er launakostnaður 914 mkr. eða 58,8%. Fjármagnsgjöld eru hærri en fjármunatekjur sem nemur 57 mkr. og er rekstrarniðurstaða neikvæð að fjárhæð 65 mkr. samanborið við 54 mkr. samkvæmt endurskoðaðri áætlun ársins 2009.
Veltufé frá rekstri fyrir heildina er áætlað 120 mkr.
Handbært fé í árslok 2010 er áætlað 153 mkr.
Ekki er gert ráð fyrir nýjum lántökum á árinu frekar en fyrri ár þessa kjörtímabils.
Aðalsjóður
Útgjöld vegna rekstrar málaflokka er færast undir aðalsjóð, nema 1.529 mkr. Tekjur aðalsjóðs, sem samanstanda af skatttekjum, leikskólagjöldum og öðrum þjónustugjöldum nema 1.410 mkr. Fjármagnstekjur nema 170 mkr. Rekstrarniðurstaða aðalsjóðs er jákvæð upp á 51 mkr.
Fræðslu- og uppeldismál er sá málaflokkur sem mestum útgjöldum er varið til og er heildarfjárveiting til málaflokksins 550 mkr. eða 35,9% af heildarútgjöldum aðalsjóðs.
Eignasjóður er sjálfstæð rekstrareining innan A-hluta sveitarfélagsins og er honum ætlað að sjá um rekstur fasteigna og nýbygginga ásamt kaupum og sölu eigna. Eignasjóður leigir síðan út fasteignir til rekstrareininga (stofnana) sveitarfélagsins samkvæmt þörfum viðkomandi eininga og innheimtir af þeim leigu (innri leigu). Markmið með rekstri eignasjóðs er að gera rekstrarkostnað fasteigna sýnilegri og að hver rekstrareining beri þann raunkostnað sem henni fylgir.
Gert er ráð fyrir 235 mkr. tekjum í eignasjóði. Heildargjöldum upp á 114 mkr. og fjármagnskostnaði upp á 134 mkr. og heildarniðurstöðu upp á 13 mkr. í gjöld umfram tekjur.
Hafnarsjóður er sjálfstæð rekstrareining innan B-hluta sveitarfélagsins. Samkvæmt frumvarpi að fjárhagsáætlun fyrir árið 2010 er gert ráð fyrir neikvæðri rekstrarniðurstöðu hafnarsjóðs að fjárhæð 9 mkr. og er það lægri upphæð samanborið við endurskoðaða áætlun 2009 sem er 20 mkr.
Íbúðasjóður er sjálfstæð rekstrareining innan B-hluta sveitarfélagsins. Rúmlega 40 félagslegar íbúðir eru í eigu Íbúðasjóðs svo og dvalarheimilið Skálarhlíð með 30 leigurýmum.
Gert er ráð fyrir 35 mkr. í tekjur og 44 mkr. í gjöld. Fjármagnsliðir eru áætlaðir 33 mkr. og framlag aðalsjóðs er 21 mkr. Rekstrarniðurstaða er neikvæð um 21 mkr.
Veitustofnun skiptist í þrjár einingar, þjónustumiðstöð, fráveitu og vatnsveitu og er sjálfstæð rekstrareining innan B-hluta sveitarfélagsins.
Tekjur veitustofnunar samanstanda af vatnsgjaldi, holræsagjaldi og þjónustutekjum.
Gert er ráð fyrir því að rekstrarhalli verði sem nemur 72 mkr. Heildartekjur eru áætlaðar 124 mkr. og gjöld 146 mkr. Upphæð fjármagnsliða er 50 mkr. Launakostnaður er áætlaður 70 mkr. eða 48% af gjöldum.
Framkvæmdir
Gert er ráð fyrir framkvæmdum upp á 163 mkr. í þessu frumvarpi. Stærstu tölurnar eru: Endurbætur á sundlaugarsvæði í Ólafsfirði upp á 57 mkr.
Götur, gangstéttir og plön upp á 26 mkr.
Bygging framhaldsskóla upp á 15 mkr.
Gámasvæði í Ólafsfirði upp á 8,5 mkr.
Rekstrarniðurstaða fjárhagsáætlunar Fjallabyggðar fyrir árið 2010 er neikvæð upp á 65 milljónir króna, en rekstrarniðurstaða A hluta sveitarsjóðs er jákvæð upp á 51 mkr.
Handbært fé í árslok er áætlað 153 milljónir.
Til máls tóku: Egill Rögnvaldsson, Þorsteinn Ásgeirsson, Guðmundur Skarphéðinsson, Þórir Kr. Þórisson og Bjarkey Gunnarsdóttir.
Fjárhagsáætlun 2010 var samþykkt með 9 atkvæðum.
14. Þriggja ára áætlun 2011 – 2013.
Til máls tók Þorsteinn Ásgeirsson.
Bæjarstjórn samþykkti með 9 atkvæðum að vísa þriggja ára áætlun til bæjarráðs milli umræðna í bæjarstjórn.
15. Ósk um leyfi frá störfum í bæjarstjórn.
Í rafpósti til forseta bæjarstjórnar Fjallabyggðar 21. janúar 2010, óskar Birkir J Jónsson eftir leyfi frá störfum í bæjarstjórn Fjallabyggðar fram að næstu sveitarstjórnarkosningum og að við sæti hans taki Helga Jónsdóttir sem skipar 3. sæti á lista Framsóknarflokksins í Fjallabyggð. Jafnframt þakkar Birkir bæjarfulltrúum og starfsfólki Fjallabyggðar gott samstarf á kjörtímabilinu.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum að veita umbeðið leyfi, og þakkar Birki samstarfið á kjörtímabilinu.
16. Styrkur til hjálparstarfs á Haítí.
Bæjarstjórn Fjallabyggðar samþykkir tillögu um að veita sem samsvarar 100 kr. á hvern íbúa í Fjallabyggð, til hjálparstarfs vegna náttúruhamfara og yfirstandandi hörmunga á Haítí. Upphæðin er kr. 210 þúsund og verður skipt jafnt á milli Rauða kross Íslands og Landsbjargar til ráðstöfunar.
Fleira ekki gert.
Fundi slitið kl. 19.30.









