Flýtilyklar
Leit
13. júlí 2010
176. fundur bæjarráðs Fjallabyggðar
haldinn sem fjarfundur í ráðhúsinu á Siglufirði og á bæjarskrifstofunum í Ólafsfirði þriðjudaginn 13. júlí 2010 og hófst hann kl. 17:00.
Fundinn sátu: Ingvar Erlingsson, Egill Rögnvaldsson, Bjarkey Gunnarsdóttir, Þorbjörn Sigurðsson, Sigurður Valur Ásbjarnarson og Ólafur Þór Ólafsson.
Fundargerð ritaði: Ólafur Þór Ólafsson, skrifstofu- og fjármálastjóri.
Fyrir var tekið:
1. 1006061 - Milliuppgjör fyrstu 5 mánuði ársins
Lagður fram árshlutareikningur Fjallabyggðar miðað við 31. maí 2010.
Helstu forsendur í árshlutareikningnum eru eftirfarandi:
Fasteignaskattur og Jöfnunarsjóður eru hlutfallaðir 5/12.
Staðgreiðsla er miðuð við lok júní.
Aðrar tekjur eru miðaðar við 31. maí.
Styrkir eru færðir samkvæmt greiðslustöðu þeirra.
Eigin fasteignagjöld eru færð til gjalda 5/12.
Áfallið orlof er fært upp miðað við 31. maí.
Áfallnir vextir eru færðir miðað við 31. maí.
Áfallnar verðbætur langtímakrafna og skulda eru færðar.
Eignfærslur eru færðar og afskriftir einnig hlutfallslega.
Lífeyrisskuldbinding er áætluð miðað við breytingu á vísitölu lífeyrisskuldbindinga ásamt 5/12 af 2% vegna tilfærslu í tíma.
Bankareikningar eru afstemmdir og áætlaðir vextir færðir vegna helstu reikninga.
Niðurfærsla krafna er talin vera nægjanleg.
Afborganir langtímaliða er sett fram í árshlutareikningnum sem það sem fellur til greiðslu til ársloka.
Fram kemur í árshlutareikningi að tekjur eru heldur minni en gert var ráð fyrir.
Bæjarráð óskar eftir því að tekið verði saman yfirlit yfir stöðu fjárfestinga- og framkvæmdaliða miðað við áætlun, eins og hún er í dag.
2. 1007040 - 70 ára afmæli Skógræktarfélags Siglufjarðar
Þann 18 júlí næstkomandi mun Skógræktarfélag Siglufjarðar halda upp á 70 ára afmæli sitt.
Sveitarfélagið sendir félaginu hamingjuóskir á þessum tímamótum og samþykkir bæjarráð 50 þús. kr. gjöf, af því tilefni.
3. 1007038 - Boðun á XXIV. landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga
Fyrir bæjarráði liggur formleg boðun á XXIV. landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga sem verður haldið á Akureyri, dagana 29. september til 1. október 2010.
Réttkjörnir fulltrúar sveitarfélagsins eru Þorbjörn Sigurðsson og Ingvar Erlingsson, og til vara Egill Rögnvaldsson og Bjarkey Gunnarsdóttir.
Bæjarstjóri mun einnig sækja landsþingið.
4. 1003153 - Starfsmannahald félagsþjónustunnar
Bæjarstjóri upplýsti bæjarráð um stöðu mála.
5. 1007047 - Ósk um tilnefningu í skólanefnd Menntaskólans á Tröllaskaga
Í bréfi Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar sem hefur hlutverk sem samstarfsvettvangur sveitarfélaga í Eyjafirði er óskað eftir tilnefningu Fjallabyggðar um einn fulltrúa í skólanefnd Menntaskólans á Tröllaskaga.
Bæjarráð samþykkir að tilnefna bæjarstjóra sem aðalfulltrúa.
6. 1007037 - Alta ehf-kynning á þjónustu til nýrra sveitarstjórna
Lögð fram kynning ráðgjafafyrirtækisins Alta til nýrra sveitarstjórna.
7. 1007029 - Aukaframlag 2010
Lagt fram til kynningar bréf Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis um seinkun á greiðslu sérstaks viðbótarframlags Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga, þar sem sýnt er að ekki verður hægt að ljúka gerð úthlutunarreglna fyrr en í haust.
8. 1007030 - Fundargerð 127. fundar Heilbrigðisnefndar Norðurlands eystra
Fundargerð lögð fram til kynningar.
9. 1007035 - Samkomulag um fjárhagsramma vegna flutnings á þjónustu við fatlaða
Lagt fram til kynningar samkomulag um fjárhagslegar forsendur fyrir flutningi málefna fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga 1. janúar 2011.
10. 1007026 - Yfirfærsla á málefnum fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga 1.janúar 2011
Lagt fram til kynningar bréf frá svæðisráði málefna fatlaðra, Norðurlandi vestra, um þá miklu ábyrgð sem yfirfærsla þessa málaflokks er.
Í ljósi þessa telur bæjarráð rétt að skipaður verði starfshópur sveitarfélaganna, sem starfa muni saman og komi að undirbúningi að yfirfærslu málaflokksins hið fyrsta.
11. 1003012 - Smábátahöfn við Síldarminjasafn Íslands
Á 24. fundi hafnarstjórnar 21. maí .sl. var á dagskrá smábátahöfn við Síldarminjasafn Íslands. Hafnarstjórn fól hafnarstjóra og formanni hafnarstjórnar að eiga viðræður sem fyrst við forsvarmenn Rauðku ehf. og Síldarminjasafns Íslands ses. um væntanlega smábátaaðstöðu austan við síldarminjasafnið.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að undirbúa viðræður við ofangreinda aðila.
12. 1005120 - Fráveitumál við hafnirnar
Á 24. fundi hafnarstjórnar 21. maí sl. voru fráveitumál við hafnirnar á dagskrá.
Hafnarstjórn taldi brýnt að fundin yrði lausn á fráveitumálum við rækjuverksmiðjuna í Siglufjarðarhöfn.
Á fund bæjarráðs mætti skipulags- og byggingarfulltrúi og fór yfir stöðu mála.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að finna lausn í samvinnu við aðila máls.
13. 1007041 - Stofnbúnaður MT - áætlun
Fyrir bæjarráði liggur áætlun um stofnbúnaðarkaup fyrir Menntaskólann á Tröllaskaga að upphæð tæpar 40,6 milljónir.
Lagt fram til kynningar.
14. 1007005 - Nýting fasteignaskattsálagningar sveitarfélaga árið 2010
Lagt fram yfirlit frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga um nýtingu fasteignaskattsálagningar sveitarfélaga árið 2010.
Hlutfallið hjá Fjallabyggð er 70% fyrir A-gjaldstofn, en 100% fyrir C-gjaldstofn.
A-skattur yrði 15 milljónum hærri ef um 100% hlutfall væri að ræða.
15. 1007048 - Heildarendurskoðun á reglum Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga
Lagðar fram til kynningar tillögur starfshóps á vegum samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra um heildarendurskoðun á regluverki Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga.
16. 1006009F - Félagsmálanefnd Fjallabyggðar – 42. fundur – 8. júní 2010
16.1. 1006028 - Undirritun fundargerða félagsmálanefndar
Afgreiðsla 42. fundar staðfest í bæjarráði með 3 atkvæðum.
17. 1006014F - Félagsmálanefnd Fjallabyggðar – 43. fundur – 1. júlí 2010
17.1. 1006057 - Erindisbréf, starfstilhögun og fundartími
Afgreiðsla 43. fundar staðfest í bæjarráði með 3 atkvæðum.
17.2. 1006058 - Undirritun þagnareiðs nefndarmanna félagsmálanefndar
Afgreiðsla 43. fundar staðfest í bæjarráði með 3 atkvæðum.
17.3. 1006059 - Skipting verkefna félagsmálanefndar
Afgreiðsla 43. fundar staðfest í bæjarráði með 3 atkvæðum.
17.4. 1005083 - Málefni fatlaðra í Fjallabyggð
Afgreiðsla 43. fundar staðfest í bæjarráði með 3 atkvæðum.
17.5. 1006069 - Yfirlit yfir starfsemi félagsþjónustu Fjallabyggðar
Afgreiðsla 43. fundar staðfest í bæjarráði með 3 atkvæðum.
17.6. 1006053 - Fundargerðir félagsmálanefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Afgreiðsla 43. fundar staðfest í bæjarráði með 3 atkvæðum.
17.7. - Umsókn um framlag úr Framkvæmdasjóði aldraðra 2010
Afgreiðsla 43. fundar staðfest í bæjarráði með 3 atkvæðum.
17.8. 1001105 - Umsókn um styrk vegna þjónustu við langveik börn og börn með ADHD greiningu
Afgreiðsla 43. fundar staðfest í bæjarráði með 3 atkvæðum.
17.9. - Umsækjendur um stöðu sálfræðings við félagsþjónustu Fjallabyggðar
Afgreiðsla 43. fundar staðfest í bæjarráði með 3 atkvæðum.
17.10. 1006035 - Fundargerð þjónustuhóps SSNV frá 09.06.2010
Afgreiðsla 43. fundar staðfest í bæjarráði með 3 atkvæðum.
18. 1006015F - Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar – 92. fundur – 24. júní 2010
18.1. 1006068 - Formreglur stjórnsýslunnar
Afgreiðsla 92. fundar staðfest í bæjarráði með 3 atkvæðum.
18.2. 1006074 - Drengskaparheit um þagnarskyldu
Afgreiðsla 92. fundar staðfest í bæjarráði með 3 atkvæðum.
18.3. 0910037 - Framkvæmdir í Héðinsfirði
Afgreiðsla 92. fundar staðfest í bæjarráði með 3 atkvæðum.
18.4. 1006067 - Hænur
Afgreiðsla 92. fundar staðfest í bæjarráði með 3 atkvæðum.
18.5. 1006009 - Klæðning Aðalgötu 32, Siglufirði
Afgreiðsla 92. fundar staðfest í bæjarráði með 3 atkvæðum.
18.6. 1006031 - Laugarvegur 5, Siglufirði, svalir
Afgreiðsla 92. fundar staðfest í bæjarráði með 3 atkvæðum.
18.7. 1006046 - Leyfi fyrir götusölu
Afgreiðsla 92. fundar staðfest í bæjarráði með 3 atkvæðum.
18.8. 1006052 - Umsókn um legu háspennukapla í Ólafsfirði
Afgreiðsla 92. fundar staðfest í bæjarráði með 3 atkvæðum.
19. 1006016F - Fræðslunefnd Fjallabyggðar – 49. fundur – 28. júní 2010
19.1. 1006083 - Ráðning leikskólakennara
Afgreiðsla 49. fundar staðfest í bæjarráði með 3 atkvæðum.
19.2. 1006082 - Drög að skóladagatali Leikskóla Fjallabyggðar 2010-2011
Afgreiðsla 49. fundar staðfest í bæjarráði með 3 atkvæðum.
19.3. 1006091 - Viðbót við sumarlokun leikskóla 2010
Afgreiðsla 49. fundar staðfest í bæjarráði með 3 atkvæðum.
19.4. 1004035 - Skipulag starfsemi nýs grunnskóla í Fjallabyggð
Afgreiðsla 49. fundar staðfest í bæjarráði með 3 atkvæðum.
19.5. 1006068 - Formreglur stjórnsýslunnar
Afgreiðsla 49. fundar staðfest í bæjarráði með 3 atkvæðum.
19.6. 1004011 - Skýrsla um samræmd könnunarpróf haustið 2009
Afgreiðsla 49. fundar staðfest í bæjarráði með 3 atkvæðum.
19.7. 1006077 - Erindisbréf fræðslunefndar
Afgreiðsla 49. fundar staðfest í bæjarráði með 3 atkvæðum.
19.8. 1006080 - Tilboð í skólamáltíðir 2010-2012
Afgreiðsla 49. fundar staðfest í bæjarráði með 3 atkvæðum.
19.9. 1004050 - Útboð akstursþjónustu
Afgreiðsla 49. fundar staðfest í bæjarráði með 3 atkvæðum.
20. 1006018F - Atvinnu- og ferðamálanefnd Fjallabyggðar – 28. fundur – 1. júlí 2010
20.1. 0810027 - Erindisbréf atvinnu- og ferðamálanefndar
Afgreiðsla 28. fundar staðfest í bæjarráði með 3 atkvæðum.
20.2. 1006068 - Formreglur stjórnsýslunnar
Afgreiðsla 28. fundar staðfest í bæjarráði með 3 atkvæðum.
20.3. 1003062 - Fyrirspurn til fiskistofu
Afgreiðsla 28. fundar staðfest í bæjarráði með 3 atkvæðum.
20.4. 1005101 - Upplýsingaöflun um kvótamál 2008/2009
Afgreiðsla 28. fundar staðfest í bæjarráði með 3 atkvæðum.
20.5. 1005113 - Kynning á stöðu styrkveitinga 2009 og 2010
Afgreiðsla 28. fundar staðfest í bæjarráði með 3 atkvæðum.
20.6. 1006041 - Umbætur á tjaldstæðinu á Siglufirði
Afgreiðsla 28. fundar staðfest í bæjarráði með 3 atkvæðum.
20.7. 1006042 - Umbætur á tjaldstæðinu í Ólafsfirði
Afgreiðsla 28. fundar staðfest í bæjarráði með 3 atkvæðum.
21. 1007044 - Fundargerð Barnaverndarnefndar Úteyjar frá 21. maí 2010
Afgreiðsla 24. fundar staðfest í bæjarráði með 3 atkvæðum.
22. 1007045 - Fundargerð Barnaverndarnefndar Úteyjar frá 25. maí 2010
Afgreiðsla 25. fundar staðfest í bæjarráði með 3 atkvæðum.
23. 1007046 - Fundargerð Barnaverndarnefndar Úteyjar frá 7. júní 2010
Afgreiðsla 26. fundar staðfest í bæjarráði með 3 atkvæðum.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:00.









