12. mars 2010

163. fundur bæjarráðs Fjallabyggðar
haldinn sem fjarfundur í ráðhúsinu á Siglufirði og á bæjarskrifstofunum í Ólafsfirði föstudaginn 12. mars 2010 og hófst hann kl. 08:00.

Fundinn sátu:
Hermann Einarsson, Þorsteinn Ásgeirsson, Egill Rögnvaldsson, Ólafur Þór Ólafsson og Þórir Kristinn Þórisson.
Fundargerð ritaði: Ólafur Þór Ólafsson, skrifstofu- og fjármálastjóri.

Fyrir var tekið:

1.  1003015 - Ráðning skólastjóra Grunnskóla Fjallabyggðar
Umsækjendur um stöðuna eru; Jónína Magnúsdóttir og Þórgunnur Reykjalín Vigfúsdóttir.
Fyrir bæjarráði liggur afstaða fræðslunefndar, fræðslufulltrúa og mat á umsækjendum frá ráðningarstofunni Capacent.
Bæjarráð samþykkir að ráða Jónínu Magnúsdóttur sem skólastjóra Grunnskóla Fjallabyggðar.
   
2.  1003016 - Ráðning skólastjóra Leikskóla Fjallabyggðar
Umsækjendur um stöðuna eru; Kristín María Hlökk Karlsdóttir og Olga Gísladóttir.
Fyrir bæjarráði liggur afstaða fræðslunefndar, fræðslufulltrúa og mat á umsækjendum frá ráðningarstofunni Capacent.
Bæjarráð samþykkir að ráða Olgu Gísladóttur sem skólastjóra Leikskóla Fjallabyggðar.
   
3.  1003017 - Ráðning skólastjóra Tónskóla Fjallabyggðar
Umsækjendur um stöðuna eru; Elías Þorvaldsson, Ave Tonisson og Magnús G. Ólafsson.
Fyrir bæjarráði liggur afstaða fræðslunefndar, fræðslufulltrúa og mat á umsækjendum frá ráðningarstofunni Capacent.
Bæjarráð samþykkir að ráða Magnús G. Ólafsson sem skólastjóra Tónskóla Fjallabyggðar.
Bæjarráð samþykkir jafnframt að tekið verði tillit til lífeyrisréttinda Elíasar Þorvaldssonar í tengslum við ráðningarmál.
   
Fleira ekki gert.  Fundi slitið kl. 08:45.

Höfundur: Hafdís Jónsdóttir - Uppfært: 12.03.2010

Mynd augnabliksins

nikulasarmot_a_olafsfirdi_h_mg_1982.jpg
Fundargátt nefndarmanna
Tillaga að aðalskipulagi
Sorphirða og flokkun
Opnunartímar
Listasafnið
www.625.is
www.siglo.is
Siglfirdingur.is
Norðurþjóðaverkefnið

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning