Félagsmál - fimmtudagur 22.desember 2011 - Gísli Rúnar Gylfason - Lestrar 46
Athygli er vakin á að samkvæmt lögum um húsaleigubætur nr. 138/1997 skal endurnýja umsókn um húsaleigubætur árlega í
upphafi árs. Umsækjendur um húsaleigubætur í Fjallabyggð eru minntir á að skila umsókn fyrir árið 2012 í síðasta
lagi 16. janúar næstkomandi.
Umsækjendum er bent á að nálgast umsóknareyðublöð á bæjarskrifstofum Fjallabyggðar á Ólafsfirði og á
Siglufirði eða á heimasíðu sveitarfélagsins. Smelltu hér til að finna
eyðublaðið.
Nauðsynlegt er að eftirfarandi gögn fylgi með endurnýjun umsóknar:
* Staðfesting á launum/bótum sl. 3 mánuði (fyrir alla sem í íbúðinni búa).
* Staðfest afrit af skattaskýrslu 2011.
* Staðfesting á skólavist námsmanna.
Félagsþjónusta Fjallabyggðar.




