
Starfið er á vegum Velferðarráðuneytisins og nýtur réttindagæslumaður lögfræðilegrar aðstoðar þaðan. Svæðið sem nýtur þjónustu réttindagæslumanns er frá Hrútafirði til vesturs og að Bakkafirði til austurs. Á sama tíma og starfshlutfall réttingæslumanns var aukið í 75%, þá voru skyldur réttindagæslumanns einnig auknar frá því sem áður var skilgreint í lögum. Það starf sem réttindagæslumaður hefur með höndum samkvæmt reglugerðum í dag er:
· Fylgist með högum fatlaðs fólks og aðstoðar það við hvers konar réttindagæslu.
· Fatlað fólk getur leitað til réttindagæslumanns með hvaðeina sem varðar réttindi þess.
· Réttindagæslumaður veitir, þeim sem leita til hans, stuðning og aðstoðar hann við að leita réttar síns.
· Réttindagæslumaður getur tekið upp mál að eigin frumkvæði.
· Hver sá sem telur að brotið sé á réttindum fatlaðs fólks getur tilkynnt það réttindagæslumanni.
· Réttindagæslumaður stendur fyrir fræðslu fyrir fatlað fólk og þá sem starfa með því.
Sjá nánar um hlutverk réttindagæslumanns fatlaðs fólks í lögum um réttindagæslu fyrir fatlað fólk;http://www.althingi.is/altext/139/s/1806.html
Áætlað er að trúnaðarmaður komi reglulega einu sinni í mánuði í Fjallabyggð og gefi kost á viðtölum við þá sem vilja ef færð og veður leyfa. Tíma pantanir í síma 8581959
Næstu heimsóknir eru á Fjallabyggð þ.e.Ólafsfjörð og Siglufjörð eru
24. janúar
21. febrúar
20. mars
17. apríl
Verkalýðsfélagið Eining á Siglufirði hefur gefið kost á aðstöðu fyrir viðtöl á Siglufirði e.h.
Viðtöl á Ólafsfirði eru á Hótel Brimnes efir þörfum.
Guðrún Pálmadóttir
gudrun.palmadottir@rett.vel.is
Sími: 858 1959
Aðsetur á Akureyri: Skrifstofa hjá Vinnueftirlitinu,
Skipagötu 14, 4. Hæð




