Menning - miðvikudagur 15.febrúar 2012 - Gísli Rúnar Gylfason - Lestrar 26
Tónleikar skólans verða í Tjarnarborg miðvikudaginn 15. febrúar kl. 18.00
Tónleikarnir verða notaðir til að velja nemendur og hljómsveitir, sem taka þátt í Nótunni uppskeruhátíð Tónlistarskólanna.
Dómnefnd verður skipuð góðu fólki úr Fjallabyggð, sem mun velja af kostgæfni, þá nemendur og hljómsveitir sem halda áfram í keppninni fyrir hönd skólans.
Uppskeruhátíðin verður haldin í menningarhúsinu Hofi á Akureyri þann 10. mars næstkomandi.




