Lausar stöður - þriðjudagur 09.ágúst 2011 - Brynjar Harðarson - Lestrar 265
Starfsmaður óskast í lengda viðveru skólabarna á aldrinum 6-8 ára.
Lengd viðvera er gæsla að loknum skóladegi. Starfsemin fer fram í skólahúsinu við Tjarnarstíg Ólafsfirði. Vinnutími er
frá kl. 13.00 til 16.00. Ráðningin nær aðeins til starfstíma skólans. Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningum. Umsóknir
berist fyrir 19. ágúst.
Nánari upplýsingar veitir skólastjóri í síma 464-9150 / 845-0467 eða jonina@fjallaskolar.is
Skólastjóri




