Bæjarlistamaður Fjallabyggðar 2012

Bæjarlistamaður Fjallabyggðar 2012 Menningarnefnd hefur valið bæjarlistamann Fjallabyggðar 2012. Fyrir valinu varð Guðrún Þórisdóttir (Garún)

Bæjarlistamaður Fjallabyggðar 2012

Menningarnefnd hefur valið bæjarlistamann Fjallabyggðar 2012.
Fyrir valinu varð Guðrún Þórisdóttir (Garún) myndlistarkona í Ólafsfirði. 

Þrjár tilnefningar bárust nefndinni, Guðrún Þórisdóttir, hljómsveitin Roðlaust og beinlaust og Kirkjukór Ólafsfjarðar.


Guðrún útskrifaðist úr Myndlistaskóla Akureyrar árið 1994 í fagurlistadeild og hefur unnið óslitið að list sinni síðan.
Hún hefur haldið margar einka- og samsýningar hérlendis og erlendis á undanförnum árum og var gestalistamaður í Gmund Austurríki árið 1996.
Guðrún vinnur að mestu með olíuliti á striga en notast líka við blandaða tækni. Hún rekur Gallerí vinnustofu við Aðalgötu 7 í Ólafsfirði og var með sýningu allt síðastliðið sumar á Hótel Brimnesi í Ólafsfirði.

Útnefning bæjarlistamanns fer fram föstudaginn 20. janúar kl. 17.00 og verður nánar auglýst í Tunnunni. 



headerheader
Starfsmenn Hafa Samband
Fjallabyggð | kt. 580706-0880 | Gránugötu 24, 580 Siglufirði | Ólafsvegi 4, 625 Ólafsfirði | Sími 464 9100 | Fax 464 9101Stefna hef - Moya