Sveitarfélagið Fjallabyggð varð til við sameiningu Ólafsfjarðarbæjar og Siglufjarðarkaupstaðar
árið 2006. Fjallabyggð er nyrst á Tröllaskaga og nær frá Almenningsnöf undan Mánárfjalli í vestri, að Æðarskeri undan
Ólafsfjarðarhyrnu í austri og að Kerlingahnjúk í suðri.
Í sveitarfélaginu eru tveir
þéttbýliskjarnar, bæirnir Ólafsfjörður og Siglufjörður. Báðir bæir byggja afkomu sína að mestu á
sjávarútvegi, vinnslu fiskafurða og ýmiskonar þjónstu við þessar greinar iðnaðar, svo sem vélsmíði og netagerð. Í
seinni tíð hefur fjölbreytnin í atvinnulífinu aukist og mikill vaxtarbroddur er í ferðaiðnaði og ýmiskonar fjarvinnslu fyrir fyrirtæki og
stofnanir á höfuðborgarsvæðinu. Í Fjallabyggð eru auk þess smíðaðir bátar, slökkvi- og sjúkrabílar og
fiskvinnsluvélar fyrir frystitogara svo eitthvað sé talið.
Þann 7. mars 2011 voru íbúar Fjallabyggðar 2.031.
Mikil náttúrufegurð er í Fjallabyggð og margar góðar gönguleiðir liggja um sveitarfélagið. Sem dæmi má nefna að eyðifjörðurinn Héðinsfjörður er vinsæll áfangastaður ferðalanga, enda er hann rómaður fyrir fegurð. Á sumrin geta ferðamenn horft á miðnætursólina dansa á sjóndeildarhringnum áður en hún rís að nýju og á vetrum eru norðurljósin oft stórfengleg.




