Tjaldsvæði

Tjaldstæði Siglufirði Tjaldsvæði Siglufjarðar er staðsett í miðbænum við torgið og smábátabryggjuna. Öll þjónusta, afþreying og söfn eru í 5-10 mínútna

Tjaldstæði

Tjaldstæði Siglufirði
Tjaldsvæði Siglufjarðar er staðsett í miðbænum við torgið og smábátabryggjuna. Öll þjónusta, afþreying og söfn eru í 5-10 mínútna göngufæri. Sunnan við snjóflóðavarnagarðinn (Stóra bola) er annað svæði fyrir þá sem kjósa ró og frið og þaðan er stutt á golfvöllinn, í hesthúsabyggð og fuglavarp. Um 10 mínútna gangur er niður í miðbæ og þar er hús með salernum og aðstöðu.

Verð:
Sama gjald á tjöld og vagna: 700 kr. per. mann
Ellilífeyrisþegar og öryrkjar: 500 kr. per. mann
Frítt fyrir börn undir 12 ára
Rafmagn: 300 kr. nóttin.
Hægt er að fá rafmagnsskott í Upplýsingamiðstöðinni gegn 3.000 kr. tryggingagjaldi sem er endurgreitt þegar því er skilað.
Hægt er að þvo og þurrka þvott á tjaldstæðinu, það kostar 250 kr. 

Tjaldstæði Ólafsfirði
Tjaldsvæðið í Ólafsfirðir er við Íþróttamiðstöðina. Þar er lítil tjörn með miklu fuglalífi og smásílum sem vinsælt er að veiða hjá yngri krökkunum.

Greitt er fyrir tjaldstæði í Íþróttamiðstöðinni

Verð á Tjadsvæði Fjallabyggðar:
Sama gjald á tjöld og vagna: 700 kr. per. mann
Ellilífeyrisþegar og öryrkjar: 500 kr. per. mann
Frítt fyrir börn undir 12 ára
Rafmagn: 300 kr. nóttin.
Hægt er að fá rafmagnsskott í Íþróttamiðstöðinni gegn 3.000 kr. tryggingagjaldi sem er endurgreitt þegar því er skilað.
Hægt er að þvo og þurrka þvott í Íþróttamiðstöðinni, það kostar 250 kr.

headerheader
Starfsmenn Hafa Samband
Fjallabyggð | kt. 580706-0880 | Gránugötu 24, 580 Siglufirði | Ólafsvegi 4, 625 Ólafsfirði | Sími 464 9100 | Fax 464 9101Stefna hef - Moya