Náttúrugripasafnið

Náttúrugripasafn Ólafsfjarðar er fyrst og fremst fuglasafn og þykir mjög gott sem slíkt. Safnið býr yfir allflestum fuglategundum landsins, en einnig er

Náttúrugripasafn Ólafsfjarðar

Náttúrugripasafn Ólafsfjarðar er fyrst og fremst fuglasafn og þykir mjög gott sem slíkt. Safnið býr yfir allflestum fuglategundum landsins, en einnig er þar að finna eggjasafn, vísi að plöntusafni, ísbjörn sem skotinn var á Grímseyjarsundi, refi í greni, geithafur, krabba og fleira. Náttúrugripasafni Ólafsfjarðar var komið upp árið 1993 og hefur vaxið stöðugt síðan. Ari Albertsson fuglaáhugamaður stoppaði upp megnið af fuglum safnsins og sá um uppsetningu þess.

Safnið er opið frá 1. júní til 31. ágúst kl. 14-17. Lokað er á mánudögum. Hægt er að semja um opnun utan þessa tíma fyrir hópa.

Náttúrugripasafn Ólafsfjarðar heyrir undir fræðslu- og menningarfulltrúa.

headerheader
Starfsmenn Hafa Samband
Fjallabyggð | kt. 580706-0880 | Gránugötu 24, 580 Siglufirði | Ólafsvegi 4, 625 Ólafsfirði | Sími 464 9100 | Fax 464 9101Stefna hef - Moya