Afþreying

Afþreying í Fjallabyggð Fjallabyggð býður upp á margvíslega afþreyingu fyrir unga sem aldna og allir ættu að finna þar eitthvað við sitt hæfi. Óvíða

Afþreying

Afþreying í Fjallabyggð
Fjallabyggð býður upp á margvíslega afþreyingu fyrir unga sem aldna og allir ættu að finna þar eitthvað við sitt hæfi. Óvíða finnur þú jafn fjölbreytta og skemmtilega möguleika til þess að láta þér líða vel. Margt má finna sér til dundurs eða slaka á og hafa það notalegt í fallegu umhverfi og afslöppuðu andrúmslofti.

Golf
Góðir 9 holu golfvellir eru nálægt báðum byggðarkjörnum Fjallabyggðar.
Golfklúbbur Ólafsfjarðar rekur 9 holu golfvöll í mynni Skeggjabrekkudals með stórglæsilegu útsýni frábæru útsýni yfir Ólafsfjarðarvatn, bæinn  og mynni Eyjafjarðar. Völlurinn er í senn bæði krefjandi og stórskemmtilegur. Hið sérkennilega vallarstæði heillar alla golfara sem prófa völlinn.
Golfklúbbur Siglufjarðar rekur golfvöll að Hóli, sem er sunnan við bæinn, í botni Siglufjarðar. Hólsvöllur er á veðursælu og fallegu svæði. Völlurinn er fjölbreyttur með stuttum, löngum og mishæðóttum brautum. Flatirnar eru flestar litlar og því erfitt að hitta þær. Völlurinn hefur reynst mörgum erfiður, en góðir golfarar sem ekki láta völlinn setja sig úr jafnvægi, ná góðum hring.

Gönguleiðir og fjallganga
Í Fjallabyggð eru tvö ferðafélög, Ferðafélag Siglufjarðar og Ferðafélagið Trölli Ólafsfirði sem standa fyrir nokkrum skipulögðum gönguferðum á hverju ári.
Margar skemmtilegar gönguleiðir eru í Fjallabyggð sem hafa verið merktar og stikaðar hin síðari ár. Þær eru mislangar og misjafnlega krefjandi svo allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Sumar leiðanna eru troðningar eins og forfeður okkar gengu í 1000 ár, en einnig eru nýrri leiðir sem eru þægilegar göngu og forvitnilegar.
Átak hefur verið gert í merkingum gönguleiða á Tröllaskaga. Vert er að benda á gönguleiðakort sem Hólaskóli hefur útbúið og selt er víða á svæðinu. Auk þess er hægt að finna kort og göngulýsingar á heimasíðu sveitarfélagsins. (http://fjallabyggd.is/moya/page/gonguleidir)

Sund
Í Fjallabyggð eru tvær sundlaugar.
Á Siglufirði er 25 metra innisundlaug, heitur pottur (úti) og ljósabekkir. Sundlaugin er við Hvanneyrarbraut 52.
Í Ólafsfirði er útisundlaug, tveir heitir pottar, setlaug, vaðlaug með svepp, fosslaug og tvær rennibrautir . Sundlaugin er við Tjarnarstíg 1.

Bátsferðir
Ferðaþjónusta Siglufjarðar  býður upp á bátsferðir þar sem hægt er að upplifa sitt lítið af hverju. Boðið er upp á hvalaskoðun, línuveiðar og beitningu, sjóstangveiði, miðnætursiglingar, siglingar til Grímseyjar og yfir heimskautsbaug svo eitthvað sé nefnt. Í Ólafsfirði er ekki um að ræða skipulagðar ferðir og þjónustu, en trillukarlarnir eru viðmótsþýðir og greiðviknir. Ferðalangar þurfa því ekki að vera feimnir við að spyrja. Góðar líkur eru á að finna trillukarla á spjalli í „Mummabúð“ (Merkt „Valberg“) í Strandgötu ef enginn finnst á bryggjunni.

Vélsleðaferðir
Svæðið í kringum Fjallabyggð er einstaklega gott til vélsleðaferða. Dalir með snjó langt fram eftir vori gera svæðið að einstakri útivistarparadís fyrir vélsleðafólk.
Vélsleðafélag Ólafsfjarðar hefur á undanförnum árum staðið að mörgum vélsleðamótum og hafa mörg þeirra verið haldin í miðbæ Ólafsfjarðar.

Skíðasvæðin
Í Fjallabyggð eru tvö skíðasvæði. Skíðasvæðið í Skarðdal á Siglufirði og Skíðasvæðið í Tindaöxl í Ólafsfirði

Skíðasvæðið í Skarðsdal má tvímælalaust telja með bestu skíðasvæðum landsins Þetta er snjómikið svæði og hefur verið hægt að skíða þarna fram á vor. Á svæðinu eru nú þrjár lyftur, tvær samfelldar lyftur, diska og T-lyfta sem samtals eru u.þ.b. 1500 metrar að lengd. Þriðja og efsta lyftan er 530 metra löng með um 180 metra fallhæð og afkastar hún um 550 manns á klukkustund. Efri endi lyftunnar er í rúmlega 650 metra hæð yfir sjó. Í Skarðsdal er að finna einhverjar bestu alhliða brekkur landsins. Nýlega var reistur glæsilegur skíðaskáli þar sem aðstaða fyrir gesti er öll til fyrirmyndar. Gerð eru hagstæð tilboð fyrir hópa um lyftukort o.þ.h. Góð flóðlýsing er á skíðasvæðinu. Hægt er að finna heimasíðu skíðasvæðisins hér. http://skisigl.fjallabyggd.is/ 

Í Ólafsfirði eru kjöraðstæður til vetraríþrótta. Hægt er að fara í vélsleðaferðir um fjöll og dali í nágrenninu og er aðstaða til skíðaiðkunar óvíða betri. Göngubrautir eru nánast lagðar um allan bæ og stendur Skíðafélag Ólafsfjarðar fyrir gönguferðum í nágrenni Ólafsfjarðar. Á skíðasvæðinu í Tindaöxl eru skíðalyfta og góðar svigbrautir. Brettamenn fá stór ótroðin svæði og nota gjarnan flá hryggi sem eru á svæðinu. Í glæsilegum skíðaskála Skíðafélagsins er boðið upp á ýmis konar veitingar. Í skálanum er svefnloft þar sem u.þ.b. 25 manns geta gist í svefnpokum. Gerð eru hagstæð tilboð fyrir hópa um lyftukort o.þ.h. Hægt er að finna heimasíðu skíðasvæðisins hér. http://skiol.fjallabyggd.is/

Skógræktin á Siglufirði
Skógræktin á Siglufirði er sannkölluð náttúruperla, hvort sem er að vetri eða sumri. Hægt er að ganga um stíga og setjast niður við bekki sem staddir eru við foss innst í skógræktinni. Skógræktin er staðsett í Skarðsdal (sami vegur og upp í skíðasvæði)

Bókasafn Fjallabyggdar
headerheader
Starfsmenn Hafa Samband
Fjallabyggð | kt. 580706-0880 | Gránugötu 24, 580 Siglufirði | Ólafsvegi 4, 625 Ólafsfirði | Sími 464 9100 | Fax 464 9101Stefna hef - Moya